10.07.1918
Neðri deild: 67. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 300 í B-deild Alþingistíðinda. (112)

4. mál, almenn dýrtíðarhjálp

Frsm. (Sigurður Stefánsson):

Hæstv. fjármálaráðherra hefir fyr sagt, að erlendis væri styrkleiðin almennari en lánaleiðin. Jeg skal ekki bera á móti því, en hjer verður fleira að koma til samanburðar. Jeg held, að vjer verðum líka að líta á, hvernig fjárhagur landsins er. Með þessum lögum er fje landssjóðs bútað og stykkjað niður í óafturkræfar gjafir, en lánin er þó altaf von um að fá endurgreidd. Vjer höfum reynsluna fyrir oss frá lánunum, sem veitt voru 1880—88. Jeg veit ekki betur, en að hver eyrir af þeim lánum væri endurgreiddur, þegar batnaði í ári. En þetta er sú reynsla, sem við höfum við að styðjast. Það getur vel verið, að þeir, sem þurfa að fá almenna dýrtíðarhjálp og fá hana með láni, verði vel færir til að borga það aftur, og þá fær landssjóður hjálpina að fullu endurgreidda, en hallærisgjafirnar eru honum altapaðar, án þess að þeim, sem þeirra njóta, sje nokkuð meiri hjálp í þeim í bráðina.