25.05.1918
Neðri deild: 31. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1078 í B-deild Alþingistíðinda. (1128)

64. mál, lán handa Suðurfjarðahreppi

Flm. (Hákon Kristófersson):

Jeg ætla að byrja þar, sem háttv. þm. (Sv. Ó.) endaði. Hann sagði, að við hefðum gengið með fyrirhyggjuleysi út í þetta fyrirtæki, með það fyrir augum að geta gengið að fjenu í landssjóði.

Þessu verð jeg að mótmæla, sem algerlega tilhæfulausu og varla sæmandi fyrir hv. þm. (Sv. Ó.) að láta frá sjer fara, enda sannar greinargerðin, að svo er alls ekki, því að þegar kostnaðaráætunin var samin fyrst, var gert ráð fyrir, að þetta mundi kosta 50.000 kr.; síðar kom það í ljós, sem leiðandi af ýmsum erfiðleikum af heimsstyrjöldinni, að þetta fje mundi ekki nægja, og var þá áætlað eða gert ráð fyrir, að kostnaðurinn færi varla fram úr 75.000 kr. Þessar 75.000 kr. lánaði Landsbankinn til 40 ára með veðdeildarkjörum. Síðan þessi áætlun var gerð og þetta lán var fengið, hafa erfiðleikarnir margfaldast og vaxið svo, að nú þykir sýnt, að minna en um 105 þús. kr. muni rafveitan varla kosta.

Jeg get fullvissað háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) um, að við gerum það ekki með ljúfu geði að leita á náðir landssjóðs, eigandi þar við þröngsýni og skilningsleysi sumra forráðamanna hans. En þar sem svo er komið með þetta mál, að við erum úrræðalausir að nokkru leyti, finnum við ekki aðra leið, og það er alls ekki með það fyrir augum, að við hugsum, að til þess komi, að hreppurinn geti ekki borgað þetta aftur, ef honum er veitt það með sæmilegum lánsskilyrðum. Annars er það sitt hvað, að hreppurinn sje fátækur, eða að hann hafi ótakmarkað lánstraust hjá bönkunum. Það getur vel verið, að slíkt geti átt sjer stað um hreppa, þar sem mikið lausafje er og margir efnamenn. En þegar búið er að að í bönkunum 75.000 kr. lán, þá er ekki nema eðlilegt, að hann fari að draga saman seglin og segi, að nú láni hann ekki meira út á gjaldþol þessarar bygðar, en það er vart sæmandi, að Alþingi komi með sömu ástæðu, og jeg er ekki í nokkrum vafa um það, að það muni verða með því fje, sem landssjóður á einna tryggast, en ekki ótryggast, þótt lánað verði.

Að endingu vil jeg taka það fram, að það er alveg óframbærileg mótbára hjá háttv. 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.) að benda á það í sambandi við þetta mál, að Patrekshreppi voru á síðasta þingi veittar 55 þús. að láni til líks fyrirtækis.

Það ættu heldur að vera meðmæli í augum þessa háttv. þm. (Sv. Ó.) og annara þm., að þessir hreppar hafa ráðist í slík framfarafyrirtæki, sem hjer er um að ræða. Og þó að slíkt kæmi fyrir — sem gera má fastlega ráð fyrir — að landssjóður gæti eitthvað verulegt eftir af lánum þessum, þá mundi enginn hagsýnn maður telja slíkt eftir. Það bæri miklu fremur vott um það, að hv. Alþingi skildi svo hlutverk sitt, að það bæri skylda til, sem jeg verð líka að álíta að eigi að vera, að styrkja slík framfarafyrirtæki sem þessi með beinu fjárframlagi úr landssjóði.