10.07.1918
Neðri deild: 67. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 301 í B-deild Alþingistíðinda. (113)
4. mál, almenn dýrtíðarhjálp
Fjármálaráðherra (S. E.):
Það er að eins örstutt athugasemd með tilliti til þess, sem jeg sagði áður, að menn eru miklu gætnari í framlögum sínum, þegar um endanlega greiðslu er að ræða heldur en lán.
Jeg vildi leyfa mjer að skjóta því til hæstv. forseta, hvort ekki mætti fresta atkvgr. um stund, með því að jeg sje, að nokkra háttv. þm. vantar enn þá, t. d. hæstv. forsætisráðherra; veit jeg að hann vildi gjarna vera viðstaddur við þessa atkvgr.