14.06.1918
Neðri deild: 49. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1090 í B-deild Alþingistíðinda. (1147)
78. mál, hækkun á styrk til skálda og listamanna
Matthías Ólafsson:
Á síðasta þingi fór stjórnin fram á, að veitt yrði til skálda og listamanna 12.000 krónur fyrra árið, en 14.000 seinna árið. Í athugasemdunum við frv. stjórnarinnar var tekið fram, að Einar Hjörleifsson Kvaran hefði farið fram á, að styrkur hans væri hækkaður upp í 2.400 kr., og því hefði stjórnin sett þetta í fjárlagafrv. sitt, með því að hún varð við ósk hans. En nú gat háttv. fjárveitinganefnd ekki verið á sama máli, því að hún leit svo á, að þeir menn, sem áður hefðu verið jafnir, ættu að halda áfram að vera það, og tók hún það margsinnis fram, að svo ætti að vera um þá Guðmunda og Einar Kvaran. En nú hefir það farið svo, að nefndin, sem úthlutaði styrknum, hefir annað-tveggja ekki veitt eftirtekt þessum ummælum fjárveitinganefndar, eða ekki viljað taka tillit til þeirra, en afleiðingin af því hefir orðið sú, að báðir Guðmundarnir hafa orðið fyrir talsverðu tapi, því að þeir hafa auðvitað búist við að fá jafnt við Einar Kvaran.
En hins vegar er það, eins og tekið er fram í nál núna, að það er enginn annar en þingið, sem að einhverju leyti getur bætt úr þessu. Till., sem nú er komin fram, er um það, að þeim verði veitt eins mikið og Einar Kvaran hafði, eða með öðrum orðum, að veittar verði 1.200 kr. til hvors þeirra. Á þetta getur nefndin ekki fallist, vegna þess, að ef farið hefði verið eftir ósk fjárveitinganefndar í fyrra, þá hefðu þeir alls ekki fengið þessa upphæð, heldur miklu minna. En það, sem nefndin leggur til að nú verði gert, er að þeim verði veitt, hvorum um sig, 400 krónur, sem er næst þeirri upphæð, sem þeir hefðu fengið, ef skift hefði verið jafnt á þá.
Jeg sje svo ekki ástæðu til þess að tala meira um aðferð nefndarinnar, sem skift hefir fjárstyrk þessum, en vildi óska, að háttv. þingdm. sæi, að þinginu er mikil sæmd í að gera þessar bætur, að bæta þessum mönnum upp það misrjetti, sem þeir hafa orðið fyrir, en hins vegar verður varla hjá því komist að álasa nefndinni fyrir það að minsta kosti, að veita ekki eftirtekt þeim umr., sem fram hafa farið um þetta. Maður gæti heimtað, að nefnd, sem falið hefir verið svo veglegt starf, kynni sjer alt, og sem að þessu lýtur, því að leitt væri, ef þetta leiddi til þess, að taka þyrfti upp aftur þá reglu, sem áður hefir verið fylgt, að láta þingið fara að skipa fyrir um þetta, því að það verður varla í móti því mælt, að mentamenn hafi betur vit á þessum hlutum en við hjer á þingi.
Jeg ætla svo ekki að segja meira um þetta, en vænti þess, að háttv. þm. verði við þessari mjög svo hógværu kröfu til fjárveitingavaldsins og greiði götu þessarar till.