14.06.1918
Neðri deild: 49. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1094 í B-deild Alþingistíðinda. (1149)

78. mál, hækkun á styrk til skálda og listamanna

Einar Jónsson:

Jeg kvaddi mjer hljóðs, eins og háttv. þm. tóku eftir, er háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) byrjaði mál sitt, og hefir hann sagt flest það, sem jeg vildi sagt hafa.

Jeg álít, að háttv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) hafi farið með rjett mál í ræðu sinni. Þótt menn þeir, er hjer um ræðir, sjeu alls góðs maklegir, álít jeg naumast rjett, að þingið ákveði sjerstaka styrkhækkun þeim til handa. Þingið hefir áður ákveðið nefnd manna til þess að úthluta skáldastyrknum, og vil jeg enga breytingu gera á þeirri ráðstöfun. Jeg efast ekki um, að þessir tveir menn sjeu verðir einhvers af þessari styrkhækkun. En jeg vil, að nefndin ákveði þá hækkun, en eigi þingið. Annars má geta þess hjer, þótt það komi ekki beinlínis þessu máli við, að eftir að þingið hafði ákveðið sjerstaka nefnd manna til þess að útbýta styrknum, var sú meginregla brotin, er það veitti Bjarna Jónssyni sjerstaka fjárhæð til þess að þýða Goethes Faust. En jeg get ekki verið því samþykkur, að þingið taki nú upp þá reglu að veita mönnum þessum aukið fje umfram fúlguna, sem ákveðin er í fjárlögunum. Þingið má ekki gera sig bert að slíkum hringlandaskap. Og auk þess ber þess að gæta, að mennirnir eru eigi svo dýrtíðinni háðir, sem aðrir starfsmenn landsins. Þeir þurfa ekki að vera svo bundnir list sinni, að þeir geti ekki haft önnur störf einnig með höndum. Aðstaða þeirra er því harla ólík aðstöðu annara starfsmanna landsins, sem eru bundnir við starfa sinn og geta ekki annað unnið. En menn þeir, er hjer um ræðir, hafa aldrei ætlað sjer að lifa á styrk þessum einvörðungu, og Alþingi skiftir því engu, þótt þeim hrökkvi ekki styrkurinn til lífsviðurhalds að öllu leyti. Þingið ber engin skylda til að veita þeim alt til klæða og skæða.

Um mennina skal jeg ekki dæma. Þeir eru sennilega báðir góðir á sínu sviði. Reyndar mun þeim hafa mishepnast nokkuð sem fleirum. En hversu gott sem má um mennina segja, get jeg ekki gengið þá leið, sem hjer er farið fram á.