14.06.1918
Neðri deild: 49. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1097 í B-deild Alþingistíðinda. (1151)
78. mál, hækkun á styrk til skálda og listamanna
Forsætisráðherra (J. M.):
Það er að eins örstutt athugasemd, í sambandi við þau ummæli háttv. þm. Dala. (B. J.), að stjórnin hafi eigi tillögurjett um það, hvernig styrknum skuli útbýtt. Þessu mótmæli jeg gersamlega að stjórnin, sem útbýtir styrknum, hafi eigi rjett til þess að skera úr, hversu mikið þarf til þess að fullnægja þeim þörfum, sem til grundvallar liggja. Stjórnin hefir vitanlega jafnmikinn rjett til þess sem fjárveitinganefndin. Hitt er annað mál, að stjórnin ræður þessu eigi til fullnustu. En það væri hart, ef hún rnætti ekki láta í ljós sitt álit.
Um hitt, sem háttv. þm. (B J.) sagði, að engin trygging væri fyrir, að nefndin kæmist að rjettri niðurstöðu, er það að segja, að hingað og þangað í löndum eru slíkar nefndir skipaðar, og þykir mörgum, sjerstaklega listamönnum, sem þær sjeu sjaldan rjettlátar í dómum sínum. Mun vera örðugt að gera svo að öllum líki, jafnvel þó að nefndin væri skipuð með þeim hætti, sem háttv. þm. Dala. (B J.) vill.
Annars virðast mjer umr. þessar fara óþarflega langt. Spurningin er að eins um þetta, hvort háttv. deild vill bæta þeim mönnum upp peningaverðfallið, er hjer um ræðir. Þegar breytt var um fyrirkomulagið á fjárveitingum þessum, var auðvitað gert ráð fyrir því, að deilur út af þessum málum yrðu ekki dregnar inn í þingið, og það hefir ekki verið haldið hingað til.