14.06.1918
Neðri deild: 49. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1098 í B-deild Alþingistíðinda. (1152)

78. mál, hækkun á styrk til skálda og listamanna

Sigurður Stefánsson:

Jeg hefi skrifað undir nefndarálitið með fyrirvara. Jeg tek undir með þeim háttv. þm., er halda því fram, að það sje neyðarúrræði fyrir þingið að fara að blanda sjer inn í mál þetta, eftir þær ráðstafanir, sem það hefir áður gert. Og þetta var álit mitt í nefndinni. En þegar jeg hafði kynst öllum málavöxtum og gerðum fjárveitinganefndar í fyrra í málinu — jeg var þá ekki kominn til þings — verð jeg að viðurkenna, að úthlutunarnefndinni hefir mistekist í meira lagi, og þess vegna virtist mjer, að eigi gæti álitist rangt af þinginu að gera athugasemd við gerðir hennar. Það er leiðinlegt að verða að ræða um mál þetta á þingi. Þess vegna hefi jeg altaf viljað, að sú aðferð væri upp tekin, sem nú er á komin, að fela stjórninni úthlutun þessa listamannastyrks. En þó að þingið hafi lagt inn á þessa braut, virðist mjer, að þær misfellur geti á orðið störfum úthlutunarnefndarinnar, sem þingið geti eigi gengið fram hjá. Og jeg álít, að slíkar misfellur eigi sjer hjer stað.

Mjer þykir munurinn á styrknum til Einars Kvaran og Jóns Trausta hjá úthlutunarnefndinni alt of mikill, þar sem hún lætur Einar hafa 2.400 kr. en Jón Trausta helmingi minna. Að vöxtum til eru verk Jóns Trausta miklu meiri. Um kostina er jeg ekki jafnfær að dæma. En jeg hygg, að jeg geti óhræddur skotið því til alþjóðar, að rit Jóns Trausta eru engu minna lesin og hafa eigi náð minni hylli meðal alþýðu en rit Einars Kvarans. Jeg get því ekki varist að láta þá skoðun í ljós, að mjer virðist, að þeir geti að mörgu leyti staðið fullkomlega jafnfætis, að jeg ekki segi meira.

Þegar nú það varð ofan á í fjárveitinganefndinni, að hún blandaði sjer inn í málið, vildi jeg, að viðbótin við Guðmund Magnússon hefði verið ákveðin hærri en til Guðm. Guðmundssonar, því að með allri virðingu fyrir ljóðskáldinu, tel jeg sagnaskáldið eiga meiri viðurkenningu skilið af hálfu þjóðarinnar. Jeg ætlaði því að bera fram brtt. í þessa átt, en fjell síðan frá því, til þess að gera eigi harka út af þessu. Jeg mun þess vegna greiða atkvæði mitt með till. nefndarinnar, jafnvel þótt jeg sje eigi alls kostar ánægður með, að eigi sje gerður meiri munur á þessum skáldum. En þótt jeg neyðist til þess að greiða atkvæði með till. nefndarinnar, þykir mjer leitt, að mál þetta komi til þingsins kasta, eftir þær ráðstafanir, er það hefir gert.

Þá þykist jeg hafa gert grein fyrir fyrirvara mínum, og hefi jeg eigi fleiru við að bæta.