11.06.1918
Neðri deild: 46. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1118 í B-deild Alþingistíðinda. (1189)

91. mál, almenningseldhús í Reykjavík

Sveinn Ólafsson:

Jeg get tekið undir það með háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.), að ekki virðist meira en svo tilgangshæft að veita nær 4.000 kr., sem till. ræðir um, til utanfarar 1—2 mönnum í því skyni að kynnast almenningseldhúsum. Háttv. þm. (M. Ó.) tók það rjettilega fram, að vjer höfum hjer nægilega glögg sýnishorn þess samvinnufjelagsskapar, sem till. gerir ráð fyrir, þar sem eru mötuneyti í skólum og verstöðum. Eftirlíkingin virðist einföld og auðveld, en auðvitað nokkru stórfeldara fyrirtæki.

Mjer finst það hálfgildingsvantraust á hússtjórnarskólanum hjer, og konum, sem þar hafa numið, ef þær eru ekki álitnar færar um að annast slíka matreiðslu svo, að við megi hlíta í slíku fjelagseldhúsi. Og þá er það ekki síður vantraust á fjesýslumönnum hjer að ætla, að þeir kunni ekki að stjórna svona stofnun eða halda yfirlitsreikning hennar.

Till. gerir ráð fyrir utanför eins karlmanns og einnar konu, til þess að nema „listina“. En jeg get ekki sjeð, hvað þessi soðgreifi og greifynja ætla að læra framar því, sem hjer má læra. Þess vegna verður mjer að líta á þessa fjárbón eins og einn vott þeirrar bitlingasýki, sem alþekt er hjer og landlæg.

Hitt getur mjer virst tiltækilegt, að veita einhverja upphæð til þess að koma þessu almenningseldhúsi upp. Slíkt væri tilgangshæfara en að veita nokkrum mönnum fje til þess að spóka sig fyrir í útlöndum.

Jeg sje mjer því ekki fært að fylgja þessari till. En aftur vil jeg mæla með því að veita einhvern fjárstyrk til þess að koma almenningseldhúsi upp, sem þá ætti helst að verða tilbúið fyrir næsta vetur.

Jeg skal svo ekki fjölyrða meira um málið. Jeg get verið háttv. frsm. (J. B.) sammála um það, að till. er „ofureinföld“. En það er líka ofureinfalt að sjá, að utanför í þessum erindum er óþörf fjáreyðsla og samsvarar eigi tilgangi.