12.07.1918
Efri deild: 64. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 303 í B-deild Alþingistíðinda. (119)

4. mál, almenn dýrtíðarhjálp

Magnús Torfason:

Eins og hv. deildarmönnum er kunnugt, hefi jeg litið svo á, að þessi dýrtíðarhjálp sje alveg ófullnægjandi, ef einhverja verulega neyð bæri að höndum.

Til samanburðar skal jeg geta þess, að kolaafslátturinn, sem kom á Ísafjörð síðastliðinn vetur nam 17.850 kr. og sló þó lítið á kolaekluna. Nú ætlar landssjóður að leggja fram alls 100.000 kr. móti 20.000 kr. frá bænum. Þessu er þannig fyrir komið, að jeg get varla skilið, að bæjarstjórnin geti notað þetta, því að hún hefir ekki ráð á að leggja fje það fram, sem krafist er í móti. Frá þessu sjónarmiði verð jeg því að greiða atkv. á móti frv.