20.06.1918
Neðri deild: 52. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1149 í B-deild Alþingistíðinda. (1229)
100. mál, lán handa klæðaverksmiðjunni á Álafossi
Fjármálaráðherra (S. E.):
Það er að eins örlítil athugasemd. Það stendur hjer í síðari lið till., að „lánið veitist gegn veði í verksmiðjunni og ábyrgð, er stjórnin tekur gilda ...“, en mjer heyrðist á háttv. frsm. (Þorl. J.), að hann slægi því föstu, hvernig ábyrgðin ætti að vera; en hjer stendur: „... ábyrgð, er stjórnin tekur gilda ...“, en þá er, skilst mjer, búið að taka fram, hvernig ábyrgðin eða tryggingin eigi að vera. Það var að eins þessi athugasemd, sem jeg vildi gera.