06.05.1918
Neðri deild: 17. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 304 í B-deild Alþingistíðinda. (123)

36. mál, stimpilgjald

Fjármálaráðherra (S. E.):

Þegar jeg skýrði háttv. deild frá fjárhag landsins, ljet jeg þess getið, að stjórnin mundi leggja eitt, eða fleiri tekjuaukafrumvörp fyrir þingið. Ástæðan til þess að frv. voru ekki lögð fyrir í þingbyrjun, var sú, að stjórnin hafði lengi vel hugsað sjer að koma með engin skattafrumvörp. Var ekki álitlegt, að koma með slík frv., þar sem gangur tekjuaukafrv. var mjög örðugur gegnum síðasta þing, og jafn sjálfsagður tekjuauki eins og tekjuskattur af mesta gróðanum, stórgróðanum 1916, var feldur úr tekjuskattsfrv., sem varð að lögum á því þingi. Auk þess voru stjórninni kunnar örðugar ástæður almennings.

En er búið var að gera yfirlit yfir fjárhagsástand landsins, þá leist stjórninni svo, að það væri með öllu nauðsynlegt, að leggja tekjuaukafrv. fyrir þingið. En fjárhagsyfirliti þessu var lokið rjett fyrir þing, og því lítill tími til undirbúnings frv.

Það voru ekki miljónirnar, sem teknar voru til þess að reka landsverslunina og önnur nauðsynja fyrirtæki, sem riðu hjer baggamuninn, en það var landsbúskapurinn á árinu 1917, sem bar sig mjög illa samkvæmt yfirlitinu, og horfur þær, sem draga mátti af honum um árið 1918. En sýnilega mjög óholt að hafa lánin í hreinan eyðslueyri; með því stefnir alt niður á við. Hjer var því sýnilegt að fylla þurfti í skörðin með auknum sköttum.

Hjer er vitanlega að ræða um bráðabirgðaskatt, sem jeg vona, að hið háa Alþingi, sem þegar hefir kynst fjárhagnum, taki vel, og sjerstaklega þar sem líkt frv. lá fyrir síðasta þingi.

Þær breytingar, sem gerðar hafa verið á frv , miða allar til hækkunar, og er gerð grein fyrir því greinargerðinni.

Í 4. gr. a—c, þar sem ræðir um afsalsbrjef o. fl., nemur hækkunin l%.

Það er vitanlega mjög erfitt, að ætla nákvæmlega á, hversu miklar tekjur verði af þessu, þar sem ekki er hægt að fá nákvæmar upplýsingar um, hversu mikið er þinglesið á öllu landinu. Hins vegar býst jeg við, að í Reykjavík hafi 1917 verið þinglýst því, sem svaraði 7 miljónum króna, og ef mætti gera ráð fyrir, að þinglýst hafi verið því, sem svaraði 8 miljónum á öllu landinu, þá mundi tekjuaukinn af þessu nema 80 þúsundum.

Nú mun því ef til vill verða borið við, að það sje hart, að leggja slíkan skatt á það, sem selt hefir verið, en þessu vil jeg að eins svara því, að alt, sem selt hefir verið, hefir verið selt með miklum gróða.

Auðvitað hefði verið rjettast að leggja á verðhækkunarskatt, en hins vegar er það mjög erfitt að finna nokkurn grundvöll fyrir verðhækkuninni.

Um skuldabrjefin er erfitt að segja, hversu miklu er þinglýst, en ef má áætla það 6 miljónir, þá mundi tekjuaukinn verða 60 þús.

Þá er einn nýr liður í þessu frv., sem ekki var í frv. í fyrra, og það er liðurinn um farmskírteinin.

Jeg verð að játa það, að þótt þessu hafi verið bætt inn í frv., þá er þetta ekki rjettlátur skattur, því í „principinu“ er það með öllu rangt, að leggja skatt á framleiðsluvörur. En nú er þörfin svo mikil á peningum í landssjóð, að ekki dugir að hirða um „princip“, eða þess háttar; aðalatriðið er að ná fje í landssjóðinn, og þá verður oft að víkja frá „principunum“ í bili, og jeg álit það skyldu mína, sem fjármálaráðherra, að gera það, einmitt af því, að jeg hefi von um að koma tekjuauka í þessari mynd í gegnum þingið.

Því vil jeg taka það fram, að ef hv. deild gæti fundið einhvern annan tekjustofn, sem komið gæti í stað þessa og væri rjettlátari, þá mundi jeg með glöðu geði taka á móti því.

Annars er mjög erfitt að áætla tekjur af þessum lið, því að allur útflutningur frá landinu er svo óviss. Þó tel jeg, að óhætt muni að áætla, að fluttar verði út vörur fyrir það, sem svarar 10 miljónum, og jeg álit, að þetta sje alls ekki hátt reiknað, heldur meira að segja mjög lágt, en lágu tölurnar skaða aldrei. 1914 vörur vörur fluttar út fyrir 20 miljónir. 1916 var upphæðin miklu hærri og 1917 er áætlað að vörur hafi verið fluttar út fyrir 20—30 milj. Þegar jeg því áætla hjer, að á árinu verði fluttar út vörur fyrir 10 miljónir, þá er upphæðin mjög lág, en jeg vil ekki nefna aðrar tölur en þær, sem byggja má á. Af þessari tekjugrein yrði því tekjuaukinn 100 þúsund.

Víxlar hygg jeg að í báðum bönkunum sjeu seldir fyrir 50 miljónir, og er lágt áætlað, að tekjuaukinn af þeim yrði 50 þúsund.

Jeg hygg reyndar, að ef frv. yrði samþykt, þá mundi það gefa meiri ágóða, en jeg held mjer við lægri tölurnar, því að þær skaða ekki.

Í greinargerðinni, sem hjer liggur fyrir, er getið nokkurra útgjalda upphæða, svo sem dýrtíðaruppbótar embættismanna, sem áætlað er að nemi 350 þús. kr. Almenn hjálp vegna dýrtíðarinnar, sem gert er ráð fyrir í stjórnarfrumv. að geti orðið alt að 450 þús. kr., og áætlaður tekjuhalli á árinu er ca. 400 þúsund.

Auk þess eru aðrar greinar, sem gera ráð fyrir að falli til útgjalda á árinu 1918, þótt útgjaldaliðir fjárlaganna geri ekki ráð fyrir þeim. Jeg hygg, án þess að nefna nokkrar ábyggilegar tölur, að hallinn á árinu 1918 muni nema ca. 2 miljónum króna.

Mjer hefir þótt skylda mín, að láta svörtu hliðarnar, engu síður en þær björtu, koma fram, er jeg lýsti fjárhagsástandinu, því að jeg álít að Alþingi og yfirleitt allir eigi að þekkja ástæðurnar eins og þær eru.

Leyfi jeg mjer svo að lokinni umr., að gera það að tillögu minni, að málinu verði vísað til fjárhagsnefndar.