20.06.1918
Neðri deild: 52. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1152 í B-deild Alþingistíðinda. (1236)
100. mál, lán handa klæðaverksmiðjunni á Álafossi
Fjármálaráðherra (S. E):
Hv. frsm. (Þorl. J.) tók það beinlínis fram, hvernig tryggingunni ætti að verða fyrir komið, og út frá því sjónarmiði sagði jeg nokkur orð áðan. En ef þingið segir það fyrirfram, hvernig ábyrgðin á að vera, hvers vegna er þá látið standa í till.: „ábyrgð, er stjórnin tekur gilda“? En háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) tók það fram, að stjórnin ætti að ákveða trygginguna, og það var einmitt það, sem jeg vildi fá skýrt og greinilega fram, hvort það væri meining þingsins að taka sjálft fram, hvernig tryggingin ætti að verða, sem auðvitað er best fyrir stjórnina, eða hvort stjórnin ætti alveg að ráða því, hvernig tryggingunni væri fyrir komið, — en þá geri jeg ráð fyrir, að stjórnin heimti alveg fullkomna tryggingu, og það má þingið líka vita.