26.06.1918
Neðri deild: 56. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1174 í B-deild Alþingistíðinda. (1271)

106. mál, bráðabirgðalaunaviðbót handa starfsmönnum landssímans

Pjetur Ottesen:

Fáein orð. Jeg skil þessa till. svo, að það sje landssímastjórinn sem á að jafna niður þessari launahækkun. Nú tók háttv. frsm. (M. Ó.) það fram, að nefndin hefði ekki fallist á till. hans um laun hans sjálfs, og hefði skrifað stjórninni athugasemd þar að lútandi. En þar sem landssímastjórinn á að vera einvaldur um þessa úthlutun, þá hefir slíkt ekki mikið að segja. Þetta kemur stjórninni þá ekkert við, og getur hún þar engu um þokað, eins og nú er um hnútana búið. Jeg hefði nú kunnað því betur, að landsstjórnin hefði þessa úthlutun á hendi, en að landssímastjórinn hefði að sjálfsögðu tillögurjett um það.

Hvað viðvíkur þessari hækkun símgjaldanna, sem háttv. frsm. (M. Ó.) mintist á, þá er það vitanlega neyðarúrræði að ráðast svo á samgöngurnar, rjett eins og gert var með burðargjaldshækkunina í fyrra, sem jeg var mótfallinn. En það verður víst ekki komist hjá að bæta að einhverju leyti laun þessara starfsmanna, og þá einkum þeirra, sem lægst eru launaðir. Jeg hefi nú ekki sjeð þessa áætlun frá landssímastjóra um skiftingu uppbótarinnar, sem háttv. frsm. (M. Ó.) gat um. Hún hefir ekki legið frammi í lestrarsal, en líklega verið hjá fjárveitinganefnd. Jeg hefði þó óskað dálítilla upplýsinga um ýmislegt í málinu, t. d. hvað landssímastjórinn hefir farið fram á handa sjálfum sjer; jeg hefi spurnir af, að það muni ekki vera skorið neitt við neglur; og þá líka, hvernig hann vill haga niðurjöfnun þessara launabóta handa öðrum starfsmönnum. Ef til vill getur háttv. frsm. (M. Ó.) gefið upplýsingar um þetta. Annars væri gott, að málið væri tekið út af dagskrá nú, svo að hægt sje að athuga það betur, og þá eins, hvort ekki sje hægt að færa upphæðina eitthvað niður.