05.07.1918
Efri deild: 58. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1184 í B-deild Alþingistíðinda. (1280)
106. mál, bráðabirgðalaunaviðbót handa starfsmönnum landssímans
Frsm. (Matthías Ólafsson):
Jeg skal ekki þreyta háttv. deild á langri ræðu, hefi litlu við það að bæta, er jeg tók fram við fyrri umr.
Jeg get nú gefið háttv. deild upplýsingar um það, hvernig landssímastjóri ætlast til að þessu fje verði varið. Til þess að bæta laun símameyja á miðstöðinni í Reykjavík, er hafa 40 —60 kr. í mánaðarkaup, á að verja 7.000 kr. Til símameyja, er hafa 50—83 kr. mánaðarlaun, á að verja 19.320 kr. Símriturum með 75—120 kr. launum eru veittar 4.300 kr. í viðbót. Sendlar fá 1.200 kr., og til smástöðva ýmissa eru veittar 1.600 kr. Því víkur þannig við um þessar smástöðvar, að landsstjórnin hefir gert samning við ýmsa stöðvarstjóra úti um land um þjónustu þeirra. Fjárveitinganefnd hefir haft til meðferðar kvartanir frá þeim, að þeir fengju ekki neina uppbót, þar sem þeir væru bundnir föstum samningum. Spurðist nefndin fyrir um, hvernig þessu viki við, og var henni svarað, að þessum stöðvum væru ætlaðar 1.600 kr. Alls verða þetta 33.420 kr. Eftir verða þá rúmlega 6.000 kr., sem eiga að skiftast, eftir till. landssímastjóra, milli landssímastjóra, aðalskrifstofunnar og allra gæslustöðvastjóra. Nú er vitanlega falin í þessu sú upphæð, er landssímastjóri fór fram á að sjer yrði veitt.
Jeg hefi áður getið um, að samkomulagi hafi verið náð um milliveg milli þess, er landssímastjóri og nefndin fór fram á.
Nú finst mjer augljóst, að ekki er hægt að veita minni upphæð en hjer er gert, og af því leiðir, að mjer finst ekki hægt að aðhyllast brtt. á þgskj. 403. Sú upphæð, sem þar er farið fram á að veita, er með öllu ónóg, og vona jeg því, að háttv flutningsmenn taki brtt. aftur.
Allir munu kannast við, að laun símafólksins eru ófullnægjandi og að enginn vegur sje til þess að halda mönnum með þeim launum. Þó að hægt sje að banna símamönnum að gera verkfall, þá stoðar það ekki. Þeir gera alls ekki verkfall, heldur segja upp starfa sínum einn og einn. Og þó að hægt væri að neyða þá til þess að halda áfram, þá væri það rangt og ósanngjarnt.
Jeg skal svo ekki þreyta háttv. deild, hefi fáu við að bæta, enda er þetta augljóst mál. Nefndin vill ganga að orðabreytingunni á þgskj. 403, að stjórnin úthluti launauppbótinni að fengnum till. landssímastjóra.
Eftir orðalagi till þótti mörgum sem skilja mætti þetta á annan veg, sem sje að stjórnin væri bundin við till. landssímastjóra. En jeg hefi altaf skilið það á þann veg, er brtt. tekur fram, en get hins vegar fallist á, að ekkert sje því til fyrirstöðu að gera orðalagið skýlausara.