09.07.1918
Neðri deild: 66. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1216 í B-deild Alþingistíðinda. (1307)

116. mál, síldarkaup, síldarforði og ásetningur búpenings

Hákon Kristófersson:

Jeg býst við, að háttv. flm. þessarar tillögu hafi gengið gott eitt til með því að koma fram með hana, og hún, ef hún næði fram að gangu, bætti úr vandræðaástandi því, sem er og útlit er fyrir, og get jeg verið því samþykkur að svo mundi verða, sjerstaklega þó með tilliti til 1. liðs till. þar sem gert er ráð fyrir því, að landsstjórnin greiði fyrir útvegun á innlendum fóðurbæti til skepnufóðurs. Býst jeg við, að þar sje einkum átt við síld. Það hefir nú þegar verið farið nokkrum orðum um þetta atriði, en þó vil jeg bæta þar við nokkrum orðum. Vil jeg gera þeirra skoðun að minni, sem heldur vilja nýja síld til fóðurbætis en gamla, þótt ódýrari kunni að vera.

Hæstv. atvinnumálaráðherra kvaðst gleðjast yfir því, að till þessi væri fram komin, og vildi benda á nauðsyn hennar. Þá hefði jeg nú talið betur við eiga, að hæstv. stjórn hefði átt frumkvæði að þessari till., heldur en það kæmi frá þingmönnum. (S. S.: Sama hvaðan gott kemur). Það getur rjett verið, en ef hæstv. atvinnumálaráðherra gleðst yfir einhverju, sem fram kemur, og bendir á nauðsyn þess, þá hlýtur hann þegar að hafa sjeð nauðsynina, en látið vera að fullnægja henni. Að hæstv. atvinnumálaráðherra, sem þetta mál heyrir sjerstaklega undir, hefir sjeð, að framkvæmdir í líka átt og till. fer væru nauðsynlegar, en gerir ekkert til að koma þeim í framkvæmd, verð jeg að telja frámunalegt afskiftaleysi af hans hálfu, afskiftaleysi, sem mjer er ekki ljóst með hverju hæstv. ráðherra getur afsakað.

Jeg er því till. þessari sammála hvað fóðurbætisbirgðirnar snertir, en álít það ekki mikils virði, þótt farið væri að senda menn út um bygðir þessa lands til þess að hvetja menn til gætilegs ásetnings. Það, að slík till. skuli borin fram, sýnir það eitt, að menn álíta forðagæslulögin nauðalítils virðí. í fyrra, þegar svipuð till. lá fyrir, benti jeg á það, að út af fyrir sig mundi það ekki hafa mikið að þýða að senda menn út um hvippinn og hvappinn, og að það mundi ekki hafa mikið að þýða, þótt stjórnin sendi út brjeflegar áskoranir í þessa átt. Undirskriftir hæstv. stjórnar væru ekki út af fyrir sig svo mikils virði til að tryggja skepnur fyrir fóðurskorti og hungurdauða. Meðan svo stendur, að Alþingi og menn úti um land láta sig í þessu efni „fljóta sofandi að feigðarósi“, er ekki við góðu að búast. Og reynsla áranna sýnir það, að þetta er ekki sleggjudómur, heldur styðjast þessi orð við staðreynd.

Það var rjett hjá háttv. flm. (P. O.), að sýslumenn hefðu heimtað skýrslur. Veit jeg ekki, í hverjum tilgangi um þær var beðið, en held, að þær hafi átt að senda til stjórnarráðsins. Í hvaða tilgangi þær áttu að fara þangað skal jeg ekki segja, en hitt veit jeg, að árangurinn af þessari skýrslugerð forðagæslumanna mun ekki hafa orðið til neinna verulegra framkvæmda með útvegun á fóðurbæti.

Jeg lít alveg eins á síðustu málsgrein till. og háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.), því að jeg er því alveg mótfallinn, að landssjóður veiti fje til að senda menn út um hreppa landsins til þess að hafa eitthvert fóðurbætis- og ásetningsgaspur við búendur. Árangur af því mundi sennilega að eins sá, að nokkrir útvaldir fengju atvinnu sem erindrekar í nokkrar vikur. En jeg veit þó, að auðvitað hefir háttv. flm. gengið hið besta til. Það getur vel hafa vakað fyrir þeim, að veita það til stuðnings mönnum við fóðurbætiskaup. (S. S.: Til þess að ljetta undir með flutningsgjald). Ef þetta á að skilja svo, þá get jeg verið með því. (S. B.: Best að skilja rjett). Jeg tek mjög vel þessari vinsamlegu ráðleggingu vinar míns, háttv. 1. þm. Árn. (S. S ), en honum hefir nú ekki tekist að orða þetta svo skýrt í till. sinni, að á henni mætti sjá, til hvers væri ætlast með fyrirmælum seinustu málsgreinar.

Jeg hreyfði því nú í vor í „privat“-samtali við menn innan þessarar háttv. deildar, hvort síðasti vetur hefði ekki sýnt, að full ástæða væri til að breyta forðagæslulögunum og gera ákvæði þeirra mun strangari, skýrari og ákveðnari í ýmsum greinum. Undirtektir eru daufar undir það, og bendir það á, að annaðhvort vita menn ekki, hvernig ástatt er, eða menn álíta málið svo umfangsmikið, að ekki sje hægt að bæta úr. En ástandið er hörmulegt eins og það er; því mun tæplega hægt að neita. Við bændurnir setjum svo á, að það getur að eins gengið ef veturinn er sæmilegur, en sje hann í harðara lagi, þá ganga skepnurnar sármagrar og hálfdauðar undan vetrinum. Það er enginn vafi á því, að hörmulega hefði farið nú í ár, ef blíðviðri hefðu ekki átt sjer stað í alt vor. Og sje það satt, að ekki óverulegar misfellur hafi átt sjer stað í vor, hvernig mundi þá hafa farið, ef illa hefði vorað? Jeg lít svo á þetta mál sem áður, að slíkt kák sem það, að benda mönnum á að halda fundi og gera samþyktir og reglugerðir um ásetning búpenings, sje pappírsgagn eitt. Hjer verður að gera ráðstafanir í fullri alvöru, því að allur hjegómi og alvöruleysi í máli þessu er einkis virði.

Jeg verð að líta svo á, að svo framarlega sem hæstv. landsstjórn gerir sitt ítrasta til þess, að 1. lið till. sje fullnægt, þá gæti af því hlotist góður árangur. En jeg get ekki litið svo á 2. lið till., að hann sje neins virði. Vitanlega er ekkert á móti því, að stjórnin, eða sá ráðherranna, sem um þessi mál fjallar, fái þá ánægju að senda nokkur brjef út um land með hans undirskrift. Það er bara pappírseyðsla og raskar ekki gildi till. Og jeg gæti enda fylgt síðustu málsgrein ásamt 1. liðnum, ef ljett yrði undir með flutning og greitt fyrir síldarkaupum, sem vitanlega gæti haft töluverðan kostnað í för með sjer, og með það fyrir augum væri má ske rjett að heimila stjórninni fje til nauðsynlegra framlaga í því skyni.

Frekar mun jeg ekki ræða till. að þessu sinni, en mun greiða atkv. með henni, og einnig síðari málsgreininni með þeim skilningi, að fjeð sje ekki ætlað til erindreka út um landið, eða annara óþarfa ráðstafana, er stjórninni ef til vill dytti í hug að framkvæma.