12.07.1918
Neðri deild: 69. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1234 í B-deild Alþingistíðinda. (1318)
116. mál, síldarkaup, síldarforði og ásetningur búpenings
Einar Jónsson:
Jeg er að vísu enn þann dag í dag þeirrar skoðunar, að forðagæsla og eftirlit með búskap bænda í sveitum hafi litla þýðingu. En samt er jeg þakklátur flm. till. fyrir það, að þeir komu fram með hana, því að í henni felst ekki að eins, að eftirlit sje haft með búskap bænda, heldur, og það skiftir mestu máli, að stjórnin kaupi síld og selji hana svo aftur til bænda. Mjer sýnist þetta vera aðalmergur till. og ekki síst fyrir það, að á öðru þgskj. frá bjargráðanefnd er sama hugsunin, því að þótt nokkur sje orðamunur á þgskj. 463 og 480, þá er efnið það sama.
Till. þessi hefir ekki mætt miklum andmælum, nema frá háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.). En jeg verð að segja, að þegar svona málefni er til umræðu hjer á þinginu, þá dettur mjer í hug, að sama þýtur í þeim skjá. Það má sem sje aldrei minnast svo á landbúnað, að hann espist ekki allur og umhverfist og bölsótist. Ósanngirni hans og stífni gagnvart landbúnaðinum er nú orðin alkunn á þingi. En til allrar óhamingju heyrði jeg ekki til hans, fremur en vant er, og þessu er ekki svo farið um mig einan, því að hann talar ætíð svo lágt og þvöglulega, að jafnvel þingskrifararnir verða að færa sig að honum til þess að heyra. Jeg segi þetta ekki sem last um manninn, því að auðvitað er honum þetta ekki sjálfrátt.
Þessi rígur háttv. þm. (M. Ó.) til landbúnaðarins kemur af því, að hann elskar sjávarútveginn svo undurheitt. En mjer er nú svo farið, að mjer er jafnant um alla atvinnuvegi landsins og viðurkenni þá, og slíkt hið sama ætti þessi háttv. þm. (M. Ó.) að gera.
Þá er það enn eitt atriði, sem jeg kann illa við og kemur fram hjá þessum háttv. þm. (M. Ó.), og það er, að hann, sem þó er skynugur maður, skuli láta það á sjer skilja, að hann sje á móti þessari till. vegna þess, að honum var synjað um nokkurra þúsunda króna lán, sem hann fór fram á að veitt væri til síns kjördæmis. Jeg hefði ekki búist við þessu af honum og hefði ekki trúað því, þó að mjer hefði verið sagt það, en nú hefi jeg heyrt það með mínum eigin eyrum og verð því að trúa.
Þessi háttv. þm. (M. Ó.) kemur með brtt. á þgskj. 472, sem tekur allan kraft úr brtt. háttv. bjargráðanefndar, því að hver ætti að hafa gagn af brtt. nefndarinnar, ef landsstjórninni væri ekki heimilað fje til þess að framkvæma það, sem í henni felst ? Það hefði verið miklu hreinlegra að koma með till. um að drepa þetta mál.
Þá fór háttv. sami þm. (M. Ó.) út í það, sem ekki stendur í till., en komið hefir fram í umræðum, að senda menn út um hjeruð landsins, til þess að hafa eftirlit með ásetningi manna og flytja prjedikanir um þau efni. Hann gat þess, og um það er jeg honum samdóma, að slíkir sendimenn mundu bæði hafa mikinn kostnað í för með sjer og gera auk þess lítið eða ekkert gagn. En það eru til sendimenn á öðrum sviðum, sem landið ætti ekki að kosta neinu til, og situr einn þeirra (M. Ó.) með 12.000 kr. í 16. gr. fjárlaganna, 21. lið. En það er svo um marga af þessum sendimönnum, að þeir lifa á kostnað landssjóðs, án þess að þeir álíti sjer það skyldu að vera til verulegra nota. Hann var að núa bændum því um nasir, sami háttv. þm. (M. Ó.), að þeir gætu ekki sjeð um sig sjálfir, en þó vill hann ekki láta samþykkja till. þessa í því formi, að hún komi þeim að nokkru gagni. En tímarnir eru öðruvísi en þeir hafa verið, og jeg býst við, að þó að bændur sjeu svo hygnir, að þeir geti sjeð um sig sjálfir, þá sje það þó hyggilegra að samþykkja þessa till. um útvegun á fóðurbæti. Jeg mun því greiða þessari till. atkvæði mitt, þó að jeg sje á móti öllum forðagæslulögum.