11.06.1918
Sameinað þing: 3. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1278 í B-deild Alþingistíðinda. (1403)
62. mál, styrkur til að kaupa björgunarbát
Sigurður Stefánsson:
Jeg hefi ekki skift mjer af þessu máli enn sem komið er, en það er síður en svo, að jeg álíti það óþarft, heldur þvert á móti. En það er svo fyrir mjer í þessu máli, sem öðrum, þar sem um útgjöld er að ræða fyrir landssjóðinn, að jeg vil ekki láta veita fje nema að notum komi og undirbúningur framkvæmda sje gerhugsaður, svo að það sje ljóst, að ekki sje verið að varpa fje landsins í sjóinn að óþörfu. En hjer verð jeg að viðurkenna, að undirbúningur þessa máls er sama sem enginn.
Hjer er verið að bjóða út fje landssjóðs, án þess að þingið hafi nokkra tryggingu fyrir því, hvort nokkuð verði úr verki, eða í hvers höndum eða hvernig höndum það lendir. Má vera, að hæstv. landsstjórn sje það framsýnni en jeg, að henni finnist engin áhætta við styrkveitinguna, en mjer finst hún sannast að segja veitt út í bláinn, þar sem enginn fjelagsskapur er mjer vitanlega enn myndaður til þess að hrinda fyrirtækinu af stað. Og þótt málið sje gott og nauðsynlegt í sjálfu sjer, þá get jeg ekki sjeð, að það sje komið á þann rekspöl, að þingið eigi, að svo komnu, að veita þetta fje. Jeg vil á þennan hátt gera grein fyrir atkvæði mínu og vona, að þingið skilji, hvers vegna jeg greiði atkv. á móti till.
Fyrir mjer stendur starf þessa báts þannig, að það sje mjög vafasamt, að hann geti uppfylt skyldu sína, hafi hann önnur störf með höndum. Jeg fyrir mitt leyti álít hann ekki mega hafa nein önnur störf með höndum en þau, sem nafnið bendir til, að bjarga lífi manna. Eigi hann að vera bundinn við veiðar öðrum þræði, mundi oft fara svo, að hann væri ekki til taks, er á þyrfti að halda, því að engum er fært að sjá það fyrir, hve nær háska beri að höndum meðfram ströndum landsins og hve nær ekki, jafnóstöðug og íslensk veðrátta jafnan reynist.
Þótt ákveðið sje, hvaða árstíma báturinn eigi sjerstaklega að gegna björgunarskyldu sinni, gæti hann brugðist þeirri skyldu sinni, er mest ríður á, nema því að eins, að hann stundaði það alt árið.
Jeg álít, að málið þurfi miklu betri undirbúning en þegar er fenginn og að það sje rangt af þinginu að samþykkja þessa styrkveitingu svona út í bláinn, eins og nú eru erfiðir tímar og hagur landssjóðins bágborinn.