11.06.1918
Sameinað þing: 3. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1284 í B-deild Alþingistíðinda. (1409)
62. mál, styrkur til að kaupa björgunarbát
Bjarni Jónsson:
Hlustað hefi jeg nú á mál tveggja manna úr fjárveitinganefndinni; tala þeir nú báðir á móti till., en voru með henni nefndinni, þegar styrkurinn var staðbundinn við Vestmannaeyjar, enda var það eina vonin til þess, að allir í fjárveitinganefndinni gætu goldið till. jákvæði sitt, að staðbinda hana við Vestmannaeyjar, eins og nefndin gerði.
Rjett mál er það, að landið verður að heimta, að tilraun sje gerð um slíkan björgunarbát, sem hjer er um rætt, áður en það fer alment að veita styrk til þeirra. En eins rjett og sjálfsagt og það er, eins rjett er það, að styrkurinn til fyrsta bátsins, verði veittur á þeim stað, þar sem veiðitíminn er á hættulegasta tíma ársins, þar sem landssjóður á allar jarðirnar, allir eru landsetar hans, þar sem fiskveiðarnar eru mestar, og þar sem málið er hafið og undirbúið; því er rjett að gera fyrstu tilraunina í Vestmannaeyjum.
Brtt. sú, sem hjer er borin fram, er því rangt hugsuð og getur aldrei gagn gert, og þeir, sem málinu fylgja, eiga ekki að ljá henni eyra. Það er vanhugsað og ekki vel gert að koma fram með vanhugsaðar og þarflausar brtt. um mál, sem frá ýmsum hliðum er viðkvæmt.
Við vitum, að það eru margir, sem vilja spara fje fyrir landssjóðinn. Það er í sjálfu sjer gott, en þeir eru þó margir, er telja meira vert, að sparlega sje farið með mannslífin, því að þau verði ekki fyrir fje keypt. Þar sem margir háttv. þm. taka svo vel undir till. þessa, að þeir sama sem bjóða fram styrk til björgunarbáta, þá lýsir það ljóslega því, að mörgum háttv. þm. er það ríkt í hug, að það sje ekki einkis vert, að menn glati ekki lífi sínu að óþörfu. Og þótt báturinn margborgi sig ekki, þegar taldir eru eineyringar þeir, er hann fær, þá efa jeg ekki, að hann geri það, þegar gætt er mannslífa þeirra, er hann bjargar. En mannslífin er ekki unt að neita til peninga. Það má að vísu reikna, hverju maðurinn afkastar en það reiknar enginn söknuð þann, sem er eftir hinn látna, nje vonir þær, sem deyja með honum.