26.04.1918
Neðri deild: 10. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1338 í B-deild Alþingistíðinda. (1473)
18. mál, verslunarframkvæmdir
Sigurður Stefánsson:
Jeg skal játa það, að mjer kom það dálítið á óvart, að þetta mál, sem till. á þgskj. 19 fjallar um, ætti að fara í bjargráðanefnd. Jeg spurði sjálfan mig, hvort því mundi þannig varið, að þessir hv. þm., sem standa á þgskj. 25, vildu að nokkru leyti stemma stigu fyrir till. vorri, sem er á þgskj. 19, með því að verkefni það, sem sú till. vill taka til athugunar, er í mínum augum svo mikilvægt og marggreinótt, að jeg álít það sjálfsagt, að þingið fari þá leið, sem vjer bendum á, að skipa sjerstaka nefnd.
Það hefir þegar verið tekið fram, að bjargráðanefnd muni á þessu þingi, þó að aukaþing sje, hafa ærið miklum og margbrotnum störfum að gegna, því að það er kunnugt, að bjargráðaþörfin vex fremur en minkar með hverju ári, sem yfir oss kemur. Vjer flm. álítum því, eins og tekið hefir verið fram, að hjer sje um svo mikilvægt málefni að ræða, að hjer sje alt gerandi til þess, að það mál geti fengið sem allra besta og rækilegasta meðferð, og að því verði því ekki dembt í nefnd, sem margvíslegum öðrum störfum hefir að gegna, sem í raun og veru eru annars eðlis en þau, sem þessari 5 manna nefnd á að fela, því að jeg hygg, að oss öllum megi vera það ljóst, að þessi nefnd þurfi að geta gefið sem fylsta og fullkomnasta skýrslu um alt það, er snertir verslunarmál landsins, sem sú mikla breyting er komin á, að þau eru nú að miklu leyti í höndum landsstjórnarinnar. Jeg fyrir mitt leyti verð að álíta þetta verkefni eitt nokkuð fjarskylt aðalstarfi bjargráðanefndar, sem aðallega hlýtur að beinast að þeim bjargráðum, sem eiga að veiða í framtíðinni, þar sem þetta mál lýtur að öllum þeim framkvæmdum, sem gerðar hafa verið í fortíðinni. Mjer finst það því dálítið torskilið, hvers vegna háttv. þm. Dala. (B. J.) vill gera þetta starf að vinnu bjargráðanefndar, þar sem það er miklu líklegra, að það geti orðið nægilegt starf fyrir sjerstaka nefnd. En hitt vil jeg ekki, að nokkur ástæða geti verið til þess, að það orð fari af þessu þingi, að það hafi ekki viljað fjalla um þetta mál með allri þeirri athygli og vandvirkni, sem við verðum að játa að það eigi skilið.
Frá mínu sjónarmiði er verslunarmálið það mál, sem þingið að þessu sinni — og svo lengi sem engin breyting verður á ástandinu í heiminum — á að helga alla sína krafta sem óskiftasta. Verslunarmálið verður að telja eitt hið mesta stórmál, sem nokkurn tíma hefir komið á dagskrá þingsins, og jeg tel það ekki nema gott, að það sje einhver sjerstakur og enda hátíðablær yfir því, eins og háttv. flm. brtt. á þgskj. 25, 1. þm. S.-M. (Sv. Ó.), tók fram, en jafnframt því sje það einlægur alvörublær, menn geri alt til þess, að það mál verði athugað sem best og ekki blandað saman við óskyld málefni, sem fastanefndir þingsins hafa með höndum. Jeg sagði, að þetta mál væri að minsta kosti eða ætti að vera eitt hið mesta stórmál, sem vjer höfum á dagskrá þingsins. Það er stórmál vegna þess, að á því veltur efnahagur og sjálfstæði þjóðarinnar, því að það, hvernig verslunin er rekin, snertir ekki að eins hag þjóðfjelagsins í heild sinni, heldur hag hvers einasta borgara í landinu.
Eins og kunnugt er, höfum vjer ráðist í það stórræði að fela landsstjórninni verslunina með hinar stærstu og mestu nauðsynjavörur þjóðarinnar.
Að þessu sinni skal jeg ekki fara út í það, hvort það hefir verið með öllu heppilegt fyrir landið að ráðast í slík stórfyrirtæki, en það verð jeg að kannast við, að mikil nauðsyn bar til þess; en út í það verður aftur á móti að fara nákvæmt, að fá sem rjettasta vitneskju og upplýsingar um það, hvernig þessu verslunarbákni, sem stofnað hefir verið til, er og hefir verið stjórnað af þeim, sem með völdin fara í landinu.
Hjer veltur á miljónum og aftur miljónum og tugum miljóna, og eru það ekki smáræðis tölur fyrir okkur, ekki stærri eða voldugri en við erum.
Þetta verslunarbákn var í fyrsta lagi sett á fót til þess að tryggja landslýð þær nauðsynjar, er hann á engan hátt gat án verið, og í öðru lagi að selja landslýð þessar nauðsynjar eins ódýru verði og auðið var. Hjer var því ekki að ræða um gróðafyrirtæki, ekki heldur um verslunarfyrirtæki, sem ætti að keppa við kaupmenn, kaupfjelög eða samvinnufjelög, heldur var með þessu verið að reyna, hvort ekki væri hægt að stýra þjóðarskútunni sem áfallaminst gegnum brim og boða heimsstyrjaldarinnar.
Jeg verð því að álíta, að háttv. þingi beri að taka þetta mál til ítarlegrar rannsóknar og yfirvegunar, og jafnframt beri því að athuga, hvernig þeim mönnum, sem falin hefir verið forstjórn þessa mikla fyrirtækis, hafi tekist að ná því takmarki, sem þingið ætlaðist til, sem sje því, að tryggja landsmönnum vörur og að þær yrðu seldar eins ódýrt og unt var.
Það skiftir því miklu máli að fá nákvæma vitneskju og greinilega skýrslu um það, hvort þessi stórkostlegu kaupsýslufyrirtæki hafa sætt betri eða verri kjörum en aðrir kaupsýslumenn, bæði að því er snertir kaup á vörum, leigu á skipum og húsum o. fl.
Enn fremur þarf þingið að fá nákvæmar upplýsingar um, og skýringar á, hvernig á því stendur, að þessi verslun hefir á stundum þóst þurfa að selja vörur sínar hærra verði en kaupmenn og aðrir verslunarrekendur á sama tíma ljetu sjer til hugar koma.
Jeg býst nú reyndar ekki við, að þetta verði rannsakað til hlítar á þessu þingi, en hitt er víst, að þessi rannsókn getur leitt til margra og mikilvægra upplýsinga um það, hvernig landsverslunin hefir verið rekin, og eins ætti hún að geta ljett undir með endurskoðun á reikningum þessa fyrirtækis siðar meir. Þótt ekki væri annað með þessu unnið, þá væri þó ekki starfað til ónýtis.
Vjer megum ekki ætla oss þá dul að kafa til botns og rannsaka til hlítar þessi mál; en það verðum við að hafa hugfast, að því að eins gerum við skyldu vora, að við hummum ekki slíkt mál sem þetta fram af okkur. En það gerum við ef við nú vísum málinu til nefndar, sem áður er önnum kafin og getur því ekki varið til málsins þeim tíma og þeirri alúð, sem bæði það og við heimtum.
Jeg tel því mikla ástæðu til að hafa sjerstaka nefnd, sem fjallar um málið, og sjerstaklega nú, þegar stjórnin hefir tvívegis lýst yfir því, að sjer fyndist ekkert vantraust felast í tillögunni á þgskj. 19, heldur að eins það, sem sjálfsagt væri.
Jeg ætla ekki, að þetta sjeu hreystiorð ein, heldur sje þetta orð mælt í fullri alvöru. Því ætti ekki að geta komið til greina nein flokkaskifting með eða móti stjórninni, þegar um þetta mál ræðir, því að það á engan flokksblæ á sjer að hafa.
Við ættum því að geta unnið með einum hug og góðum vilja að þessu nauðsynjamáli, til hvaða flokksbrotasilfurs hjer á þingi sem við annars kynnum að heyra.
Viðvíkjandi brtt. á þgskj. 26, um að vísa málinu til fjárhagsnefndar, vil jeg láta það uppi, að henni mun jeg gefa atkvæði mitt, vilji háttv. deild ekki skipa sjerstaka nefnd til þess að rannsaka málið, þó með það bak við eyrað, að greiða svo atkvæði móti brtt. þannig breyttri.