26.04.1918
Neðri deild: 10. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1349 í B-deild Alþingistíðinda. (1478)
18. mál, verslunarframkvæmdir
Flm. (Gísli Sveinsson):
Sú hefir nú orðið raunin á, að meira hefir verið rætt um þessa till. en jeg í fyrstu bjóst við að mundi verða á þessu stigi málsins. En þó að menn sjeu ekki á eitt sáttir um kosningu nefndarinnar, þá hygg ég alla vera sammála um, að málið eigi að rannsaka. Það hafa að eins komið fram tvær raddir, sem skilja mætti þannig, að á þessum rannsóknum væri engin þörf.
Háttv. þm. Dala. (B. J.) sagði, að till. væri óþörf, því að nefndir væru þegar fyrir, sem störf þau heyrðu undir, er nefndinni er ætlað að hafa með höndum. Hann sagði það skylduverk bjargráðanefndar að taka þetta mál til athugunar, en það er rangt; bjargráðanefnd síðasta þings, er var sú fyrsta, taldi það eitt skyldu sína, að ráða fram úr því, sem gera ætti í framtíðinni. Mætti það líka virðast ærið nóg verkefni einni nefnd að ráða fram úr því.
Jeg vil nú ekki væna hv. þm. Dala. (B. J.) þess, að hann með þessu vilji hindra það, að rannsókn fari fram. En enginn, sem vill rannsaka í nokkurri alvöru, getur verið að tala um, að þetta mál eigi að setja í þá nefnd, sem ólíklegust er allra til þess að ráða fram úr málinu.
Sama máli virðist gegna um þá fullyrðingu háttv. þm. (B. J.), að sú athugun á fjárhag landsins, er áður hefir verið rætt um hjer, sje skylduverk fjárhagsnefndar. Það er algerlega rangt. Í hæsta lagi hefði mátt segja, að hún hefði haft það skylduverk á reglulegu aðalþingi, sem þó ekki heldur var, en alls ekki nú á aukaþingi sem þessu.
Háttv. þm. (B. J.) virtist einkennilega mikið fylgjandi því, að vísa málinu til bjargráðanefndar, og úr því að hann og fleiri í sjálfri bjargráðanefnd eru svo sólgnir í að fá meira að gera, þá er vonandi, að einhverjir þeirra fái að komast í þessa sjerstöku nefnd, sem hjer er verið að tala um að skipa. Enn fremur taldi háttv. þm. Dala. (B. J.), að í svona nefnd mættu ekki eiga sæti þeir þingmenn, sem áður hefðu verið í stjórn, en þó er kunnugt, að einn fyrverandi ráðherra er í bjargráðanefnd. Er broslegt, hvernig háttv. þm. (B. J.) þarna mælir á móti sjálfum sjer. Jeg álít það einmitt kost, að þeir, sem eru þessum hnútum kunnugastir, sjeu í nefndinni, því að jeg vil ekki líta á þessa nefndarkosningu eins og háttv. þm. Dala. (B. J.), að hún sje fyrirfram gefin vantraustsyfirlýsing á stjórnina.
Háttv. þm. Dala. (B. J.) vildi halda því fram, að væntanleg nefnd ætti ekki eingöngu að ná til núverandi stjórnar, heldur ætti hún, ef hún yrði kosin, einnig að rannsaka gerðir eldri stjórnar í verslunarsökum. En nú er því svo varið, að flest atriðin, sem menn heimta skýringu á, eru ekki frá svo gömlum tímum, að þar verði bendlað eldri stjórn við; allar mikilvægustu ráðstafanirnar, sem hjer koma til mála, eru frá tímum núverandi stjórnar, og vitanlega verður fyrst að athuga þau málin, sem mesta eftirtekt hafa vakið. Og gerðir fyrv. stjórnar hafa áður verið athugaðar á aukaþinginu í fyrra, eins og kunnugt er. Jeg endurtek það, að jeg tel það einmitt kost, að menn, sem áður hafa verið í stjórn, sjeu í nefndinni, og veit, að allir hugsa svo, nema háttv. þm. Dala. (B. J.), sem lítur á þessa nefndarkosningu sem sjálfgefinn áfellisdóm á stjórnina og blindast af því. háttv. þm. (B. J.) kvaðst að vísu ekki vera kominn hingað til þess að verja stjórnina, en annað fanst mjer nú ræða hans bera vott um.
Þá skal jeg snúa mjer að háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.). Hann var annar þeirra tveggja, sem virtist efast um, að tímabært væri að kjósa þessa nefnd, en ekki færði hann frekari rök fyrir því máli. Hann sagði að vísu, að yfirleitt mundu menn ekki geta ætlast til þess, að rannsókn færi fram nú í slíku máli sem þessu. En jeg hefi ekki heyrt annað en að allur þorri landsmanna æski einmitt slíkrar rannsóknar, eftir því sem tími og tök verða til.
Sami háttv. þm. (M. Ó.) taldi ýmsar ráðstafanir stjórnarinnar heppilegar, og neitar enginn, að svo hafi getað verið, en það er einmitt það, sem væntanleg nefnd á að athuga með öðru, hvort þær hafi allar verið heppilegar. Og ekki trúi jeg því, að tími vinnist ekki til að rannsaka málið að einhverju miklu leyti, þó að þingið verði stutt.
Háttv. þm. V.-Ísf. (M. Ó.) benti á ýmsar óhagstæðar kringumstæður, sem landsverslunin hefði orðið að berjast við, svo sem óhentuga flutninga, á móts við kaupmenn, o. fl.; en jeg veit ekki betur en að kaupmenn hafi yfirleitt orðið að búa við sömu kjör og jafnvel lakari. Hefir landsverslunin oftast verið látin ganga fyrir með flutning á íslenskum skipum, eins og líka eðlilegt er. Aðalreglan hefir verið sú, hygg jeg, að kaupmenn hafa flutt og viljað flytja vörur sínar ætíð þegar þeir hafa fengið rúm fyrir þær, en hafa iðulega ekki fengið flutt, þótt tilbúnir væru til þess að sæta sömu kjörum og landsverslunin. Þessa vildi jeg geta til leiðrjettingar, en ekki ræða það málefni neitt frekar nú. Aðrar orðræður hv. þm. (M. Ó.) tel jeg ekki koma málinu við.
Hæstv. stjórn, eða sú rödd, sem frá henni kom, þar sem var hæstv. atvinnumálaráðh., hefir lýst yfir því, að sjer væri rannsókn kær, og því ekkert tilefni gefið til athugasemda.