10.04.1918
Sameinað þing: 1. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 15 í B-deild Alþingistíðinda. (1524)
Rannsókn kjörbréfs
Forstisráðh. (J. M.):
Skömmu áður en hið háa þing var kallað saman, barst mjer svo hljóðandi brjef frá hv. 1. landsk. þm. (H. H.):
Samkvmt fyrirmlum húslknis míns, herra landlknis Guðm, Björnssonar, og með skírskotun til meðfylgjandi vottorðs hans, dags, 21. f.m., leyfi jeg mjer hjer með að beiðast þess, að hinu háa stjórnarráði mtti þóknast að kveðja varamann minn til þingsetu á komandi aukaþingi í minn stað,
Reykjavík, 31. mars 1918.
Virðingarfylst
H. Hafstein.
Til
stjórnarráðs Íslands,
en í vottorðinu er það tekið fram, að háttv. 1. landsk. þm. (H. H.) geti ekki, eins og heilsu hans er nú háttað, setið á þingi.
Þegar er jeg fjekk brjef þetta skýrði jeg háttv. 1. varaþm. af A-lista við landskosningarnar 1916, hr. Sigurjóni Friðjónssyni, frá brjefi þessu og beindi því til hans, hvort hann vildi eigi koma til Alþingis, og er hann mættur hjer.
Jeg finn ekki að sinni ástæðu til að fara fleiri orðum um þetta, en mun gefast færi til þess ef til vill, þegar kjördeild sú, er rannsakað hefir kjörbrjef hans, hefir lokið starfi sínu, því að sjálfsögðu verður skift í kjördeildir, svo sem venja er til er nýir þingmenn taka sæti.
Skiftust þingmenn nú í kjördeildir, og urðu í
1. deild:
Benedikt Sveinsson,
Björn Kristjánsson,
Einar Árnason,
Einar Jónsson,
Guðmundur Ólafsson,
Jón Jónsson,
Jörundur Brynjólfsson,
Magnús Torfason,
Pjetur Ottesen,
Pjetur Þórðarson,
Sigurður Jónsson,
Sigurjón Friðjónsson.
2. deild:
Bjarni Jónsson,
Eggert Pálsson,
Einar Arnórsson,
Guðmundur Björnson,
Hákon Kristófersson,
Hjörtur Snorrason,
Kristinn Daníelsson,
Magnús Guðmundsson,
Magnús Pjetursson,
Pjetur Jónsson,
Sigurður Eggerz,
Sveinn Ólafsson,
Þorleifur Jónsson.
3. deild:
Björn Stefánsson,
Gísli Sveinsson,
Guðjón Guðlaugsson,
Jóhannes Jóhannesson,
Jón Magnússon,
Karl Einarsson,
Magnús Kristjánsson,
Sigurður Sigurðsson,
Sigurður Stefánsson,
Stefán Stefánsson,
Þorsteinn Jónsson,
Þórarinn Jónsson.