17.04.1918
Neðri deild: 1. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 44 í B-deild Alþingistíðinda. (1550)
Stjórnarfrumvörp lögð fram
Forsætisráðherra (J. M.):
Jeg vil leyfa mjer að leggja fyrir þessa háttv, deild;
1. Frv. til laga um breyting á lögum 15. okt. 1875, um laun íslenskra embættismanna, lögum 3. okt. 1903, um skipun á æðstu umboðsstjórn Íslands, og lögum 20. okt. 1913, um stofnun hagstofu Íslands (5).
2. Frv. til laga um skipun barnakennara og laun þeirra (6).
Jeg finn enga ástæðu til að orðlengja um þessi frv. nú. Jeg býst við, að hæstv. fjármálaráðherra muni leggja fram frumvarp til laga um almenna hjálp vegna dýrtíðarinnar og jafnframt skýra þessari háttv. deild frá fjárhag landsins.