19.04.1918
Efri deild: 5. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1390 í B-deild Alþingistíðinda. (1557)

Alþingiskostnaður

forseti:

Áður en gengið er til dagskrár vil jeg gera háttv. fundarmönnum kunnugt um nokkrar ráðstafanir forsetanna viðvíkjandi væntanlegum þingkostnaði á þessu aukaþingi.

Allur alþingiskostnaður frá 1. jan. til 31. des. 1917 er talinn 171.733 kr. 43 aur. En vilji menn bera þann kostnað saman við þingkostnaðinn á aðalþinginu 1913 (fyrir stríðið), þá verður að draga frá alþingiskostnaðinum 1917 þessi sjerstöku útgjöld:

1. Aðgerðir á þinghúsinu og nýir innanstokksmunir kr. 9.700,00

2. Gjöf til skáldsins Stephans G. Stephanssonar — 5.000,00

3. Ótakmörkuð símaafnot þingmanna — 2.644,00

4. Minning látinna þingmanna og útfararkostnaður eins þingmanns — 500,00

5. Opinber gjöld og þinghúsgarður — 752,00

6. 3 þingdagar (framyfir 1913) — 3.600,00

Samtals kr. 22.196,00

Er þá að meta tæpar 150.000 kr., sem var kostnaður við Alþingi 1917, móti tæpum 88.000 kr., sem var alþingiskostnaður 1913.

Hækkunin, 62.000 kr., er ca. 70%, og það þarf engum skynbærum manni að ofbjóða.

Við forsetar höfum leitast við að gæta ítrustu sparsemi, sem sjá má á því, að 1913 voru aðalstarfsmenn þingsins 33 og kaupgjald þeirra 17.395 kr., en 1917 voru þeir sömu starfsmenn 32 og goldin 20.705 kr. Sú hækkun er því ekki nema ca. 3.300 kr., eða rúm 12%.

En langstærsti kostnaðaraukinn er hækkun á prentkostnaði. Þrátt fyrir ýmsan tilsparnað þar, frá því sem áður var, hleypur sá kostnaður upp á rúmlega 62.000 kr., en var 1913 ekki nema ca. 29.000 kr. Þar munar 33.000 kr. Og nú er þessi kostnaður orðinn 164% hærri en hann var 1913 á umræðukafla þingtíðindanna og 138% hærri á skjalaparti, og getur orðið meira nú.

Vjer forsetar höfum athugað vandlega allar sparnaðarleiðir í þingkostnaði þessa nýbyrjaða þings.

Vjer höfum ráðið svo fáa starfsmenn, sem frekast þótti fært. En sá kostnaðarmunur nemur þó harla litlu.

Þá höfðum vjer ákveðið að takmarka ókeypis símanot þingmanna, og loks kom okkur til hugar að vekja máls á þeim eina sparnaði, sem stórum munar og gerlegur væri, fresta prentun á umræðum þingsins.

Þá mikilvægu sparnaðartillögu höfum vjer nú borið upp á einkafundi allra þm. Hæstv. forseti Sþ. kvaddi til þess málfundar í gær. En á þeim fundi fjellu umræður og atkv. svo, að mikill meiri hluti þm. var því mótfallinn, að frestað væri prentun á umræðum þingsins, eins og reyndar við mátti búast.

Jafnframt var á þeim málfundi allra þm. samþykt áskorun til forsetanna um það að takmarka ekki símanot þm. á þann hátt, sem forsetar höfðu afráðið, en leyfa þeim jafnfrjáls afnot af símanum sem á síðasta þingi.

Vjer teljum oss að sjálfsögðu skylt að taka þá áskorun þm. til greina. En jafnframt vil jeg vekja athygli á því hjer í háttv. Ed, að það er með öllu ógerlegt fyrir símaverði þingsins og landssímastöðina að greina sundur þau símanot þm., sem þeir ætlast til að þingið borgi, frá hinum, sem þeir telja sjer sjálfum skylt að borga.

Jeg verð því að brýna það skýrt og skorinort fyrir háttv. þingmönnum, að þeir verða sjálfir að gera þennan greinarmun og gefa landssímastöðinni jafnan til kynna, ef þeir ætla sjálfir að borga símtal eða símskeyti, svo að það verði ekki skrifað á reikning Alþingis.

Jeg skal svo að lokum vekja athygli háttv. deildar á brjefi allra forseta, dags. 16. sept. 1917, til fjárveitinganefnda þingsins (sjá Alþt. 1917 C, bla. 1352— 1353), um uppbót á þingfararkaupi þingmanna, svo að það málefni verði athugað í tæka tíð nú á þessu þingi og afgreitt á eðlilegan og löglegan hátt.