05.07.1918
Efri deild: 58. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1394 í B-deild Alþingistíðinda. (1559)
Ágreiningur um fundarbókun
Deildarskrifari (Eggert Pálsson):
Um atriði það, er háttv. þm. Vestm. (K. E.) er að tala um, er svo bókað í gerðabók Ed.:
„Karl Einarsson neitaði að greiða atkvæði og færði ekki til neina ástæðu. Lýsti forseti þá yfir því, að beitt mundi verða við þm. ákvæðum þingskapanna um þingvíti (53. gr.)“.
Viðvíkjandi þessari bókun, sem jeg ber að nokkru leyti ábyrgð á sem skrifari, vil jeg taka það fram, að þar sem hæstv. forseti lýsti yfir, að beitt yrði hegningu, þá leit jeg svo á, sem hæstv. forseti ætti þar eigi við annað en refsingu þá, er felst í 53. gr. þingskapanna. Það liggur í hlutarins eðli, að hæstv. forseti gat hvorki átt við flenging eða tukthús. Jeg hlaut því að bóka þetta í samræmi við þingsköpin, 53. gr., því að um annað eða meira gat ekki verið að ræða.
Jeg verð því að halda fram, að hjer sje rjett bókað. Það á að bóka svo, að efni raskist ekki, en eigi svo, að orðrjett sje tekið.