05.07.1918
Efri deild: 58. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1395 í B-deild Alþingistíðinda. (1561)
Ágreiningur um fundarbókun
Karl Einarsson:
Jeg vil að eins taka það fram, að jeg hefi ekkert að athuga við það, sem bókað hefir verið, úr því að hæstv. forseti hefir lýst yfir því, að hann hafi ekki meint annað en það, sem bókað er, en hins vegar brúkaði hann orðið hegning.