06.07.1918
Sameinað þing: 6. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1402 í B-deild Alþingistíðinda. (1570)
Þingfararkaupsnefnd
Magnús Kristjánsson:
Jafnvel þótt jeg búist við, að háttv. þm. Ísaf. (M. T.) vilji hafa síðasta orðið, ætla jeg þó að svara honum örfáum orðum.
Það var ekki rjett, sem háttv. þm. (M. T.) sagði, að eldstæði hafi ekki verið til í skipinu. Það var til, en hvort það hafi reynst fullnægjandi í því aftakaveðri, sem þá skall á, skal jeg ekki segja um.
Þegar komið getur fyrir, að þing verði kallað saman á hvaða tíma árs sem er þá er ekki sanngjarnt að gera kröfur um allra þægilegustu flutningatæki, því að þau eru oft ófáanleg, og svo var í þetta sinn, sem hjer er um að ræða Þeir þingmenn, sem ekki þola nema bestu aðbúð, ættu helst ekki að gefa kost á sjer til þingsetu.