16.07.1918
Neðri deild: 72. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (1573)
Málshöfðunarleyfi gegn þingmanni
Hinn 10. júlí barst forseta neðri deildar svo látandi brjef:
„Í ræðu, sem 2. þingmaður Reykvíkinga, forsætisráðherra Jón Magnússon, flutti í neðri deild Alþingis föstudaginn 28. júní s.l. sem svar við fyrirspurn út af greinum, sem birst höfðu í dagblaðinu Vísi, komst nefndur ráðherra svo að orði:
En jeg get ekki neitað því, að mjer hefir sárnað þessi árás, af því að mjer sárnar það, að íslenskt blað, jafnvel á hve lágu siðferðis- og menningarstigi sem það annars stendur, skuli leyfa auðvirðilegustu Leitis-Gróu rúm til þess að svívirða erlend stórmenni o. s. frv.
Með því að þessi ummæli eru mjög móðgandi fyrir mig, sem ritstjóra nefnds blaðs, leyfi jeg mjer hjer með virðingarfylst að fara þess á leit, að háttvirt þingdeild veiti samþykki sitt til þess, að jeg megi höfða mál gegn ráðherranum út af tjeðum ummælum, til þess að fá þau dæmd dauð og ómerk, þar sem ekki verður heldur sjeð, að ráðherrann hafi viðhaft þessi orð í neinu öðru skyni en að svala geði sínu og þau gátu enga þýðingu haft til upplýsinga í máli því, sem um var að ræða, en þinghelgin væntanlega ekki til þess ætluð, að gefa einstökum þingmönnum, sem þannig vilja nota hana, jafnvel þó í ráðherrasess hafi komist, tækifæri til þess að geta óvirt utanþingsmenn opinberlega í orðum að ósekju í skjóli hennar.
Reykjavík, 9. júlí 1918. Jákob Möller.
Til
neðri deildar Alþingis.
Forseti Nd. svaraði brjefinu 11. júlí á þessa leið:
Með brjefi, dags. 9, þ. m., hafið þjer, herra ritstjóri, leitað leyfis neðri deildar Alþingis til þess að mega höfða mál gegn 2. þm. Reykv., Jóni forsætisráðherra Magnússyni, út af ummælum, er hann hafði í ræðu í neðri deild föstudaginn 28. júní þ. á. og þjer tilgreinið í brjefinu.
Út af þessu skal yður hjer með tjáð, að samkvæmt 38. gr. stjórnarskrárinnar 5. jan. 1874 má hvorug þingdeildin taka við neinu málefni, nema einhver þingdeildarmanna taki það að sjer til fiutnings. Mál þetta getur því ekki komið til meðferðar, nema fram sje borin tillaga í þá átt, sem erindið fer fram á, af einhverjum þingdeildarmanna.
Brjef yðar er nú lagt fram í lestarsal þingsins.