16.07.1918
Neðri deild: 72. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1404 í B-deild Alþingistíðinda. (1574)
Málshöfðunarleyfi gegn þingmanni
Forseti:
Það er nú að vísu svo ákveðið í 38. gr. stjórnarskrárinnar 1874: „Hvorug þingdeildin má taka við neinu málefni, nema einhver þingdeildarmanna taki það að sjer til flutnings“. En þessi ósk hæstv. forsætisráðherra, sem um leið er 2. þm. Reykv., getur skoðast gild, þótt hún sje ekki alveg bókstaflega formleg, þar sem hann gerist ekki beint flm. málsins. Það hefir áður verið tilkynt hjer í deildinni, að þetta erindi hafi komið, og þá var það tilkynt um leið, að það yrði ekki tekið fyrir í deildinni, nema einhver háttv. þingdm. gerðist flm. að því. Þótt enginn hafi formlega gefið sig fram sem flm. þess, þá er það samt nú tekið á dagskrá, eftir ósk hæstv. forsætisráðherra, og er til umræðu.
Jeg veit ekki, hvort menn óska, að erindið gje lesið hjer upp. Það hefir legið frammi í lestrarsalnum, svo að þingmenn hafa átt kost á að lesa það.