17.07.1918
Efri deild: 68. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1408 í B-deild Alþingistíðinda. (1578)
Starfslok deilda
Kristinn Daníelsson:
Þótt jeg fyrir mitt leyti hefði kosið, að þessi yfirlýsing hæstv. forseta hefði ekki komið fyr en fundi þeim, sem á að halda í Sþ., væri lokið, þá skal jeg ekki um það fást, þar sem jeg veit, að það er vilji fundarmanna, að störfum deildarinnar sje nú slitið. Jeg vil því þakka forseta vel unnið starf að þessu sinni, eins og jafnan áður. Hvort sem þetta þing sætir misjöfnum dómum eða ekki, þá munum vjer sammála um það, að forseti á enga sök á því, þótt miður kunni að hafa tekist. Hann hefir sem áður lagt alúðarrækt við störf sín og reynst þingmönnum samvinnugóður. Í nafni deildarinnar leyfi jeg mjer að flytja honum þakkir og árnaðarkveðju.