17.07.1918
Neðri deild: 74. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 1410 í B-deild Alþingistíðinda. (1581)

Starfslok deilda

Sigurður Stefánsson:

Jeg hygg, að allir háttv. deildarmenn geti tekið undir með mjer og þakkað hæstv. forseta fyrir ljúfmannlega stjórn hans og góða samvinnu á þessu þingi. Vil jeg biðja háttv. deildarmenn að votta hæstv. forseta virðingu með því að standa upp.

(Allir stóðu upp).