18.04.1918
Efri deild: 4. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 9 í C-deild Alþingistíðinda. (1588)

3. mál, fráfærur ásauðar

Atvinnumálaráðherra (S. J.):

Eins og háttv. þm. er kunnugt, er gerð allítarleg grein fyrir frv. þessu í athugasemdunum, sem því fylgja.

Það, sem sjerstaklega vakti fyrir stjórninni, var hið sama og það, sem framkvæmt er nú í öðrum löndum, í miklu stærri stíl en hjer, sem sje það að bjargast sem mest við innlendar afnytjar, svo að ekki verði veruleg hungursneyð, þótt siglingateppa yrði.

Jeg skal svo ekki fara frekar út í frv. þetta að sinni, vil að eins óska, að það fái að ganga til 2. umr. og henni verði frestað þangað til bjargráðanefndin hefir sest á laggirnar.