20.04.1918
Efri deild: 6. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í C-deild Alþingistíðinda. (1603)
3. mál, fráfærur ásauðar
Karl Einarsson:
Frv. þetta verður að skoðast fyrst og fremst sem ófriðarráðstöfun, og því sjálfsagt og rjett að vísa því til bjargráðanefndar, en það er hins vegar einnig rjett, að hún beri það undir landbúnaðarnefnd, áður en hún skilar því aftur, og beri t. d. undir landbúnaðarnefndina, hvort hægt sje að framkvæma ákvæði frv. eður eigi, svo að gagni komi.