27.06.1918
Neðri deild: 57. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 71 í C-deild Alþingistíðinda. (1652)
104. mál, skipun læknishéraða
Benedikt Sveinsson:
Jeg býst við, að ýmsum þyki leitt að fá þennan uppvakning aftur inn í deildina; því að eins og mönnum er kunnugt var frv. um sama efni felt áður á þessu þingi, og þegar af þeirri ástæðu er vafamál, að leyfilegt sje að koma fram með þetta frv. á sama þingi. Það verður að minsta kosti að teljast á móti anda þingskapanna, að frv. þetta fái fram að ganga, enda hefir sú ekki verið venjan, að frv., sem kveðin hafa verið niður, væru vakin upp að nýju á sama þingi. En hitt frv. var, sem kunnugt er, felt með 15 atkv.
Blöðunum hefir orðið töluvert fjölrætt um mál þetta og þeim verið lagt ámælisorð, sem stóðu að því að fella frv. Stjórn Læknafjelags Íslands reit grein í Læknablaðið — sem annars fáir lesa, því að nú eru læknar hættir að gefa út blað við alþýðuhæfi, eins og Hjaltalín landlæknir gerði. Ef það á að verða almenningi kunnugt, hvað í blaði þessu stendur, verða önnur blöð að taka það upp. Hingað til hafa þau ekki gert það, ef um eitthvað þarflegt hefir verið að ræða. En í þetta sinn ginu þau við því, hvert af öðru, af því að ritsmíð þessi var níð og skammir um einstaka þingmenn.
Það kom greinilega í ljós við umræður þessa máls á dögunum, að þeir, sem lögðust á móti frv., voru eigi mótfallnir því, að kjör lækna yrðu bætt. Tek jeg þetta fram af því, að enginn skoraðist undan að hækka fastalaun læknanna. Og hv. þm. Stranda. (M. P.), sem var framsm. málsins, ljet þá svo um mælt, að læknar vildu heldur fá þesskonar uppbót heldur en uppbót á taxtanum.
Jeg lagði þá eigi neitt til þessa máls, og kom ekki með neina brtt. við frv., því að jeg bjóst við, að flm. eða aðrir, er þá tóku til máls, mundu bera fram breytingar í þessa átt og ganga svo frá launakjörum lækna, að þeir mættu við una. En þegar málið kom til 3. umr., höfðu engar brtt. komið fram við frv., og var þá eigi um annað að ræða en greiða atkv. annaðhvort með því eða á móti. Og jeg var einn þeirra syndasela, sem greiddu atkv. móti frv. En þá stekkur stjórn Læknafjelagsins upp á nef sjer og ritar hina umræddu grein og segir þar, að þm. hafi nú slitið því góða samkomulagi, sem hingað til hafi verið milli lækna og alþýðu, þar sem „þeir skollar“ vilji ekki sýna læknastjettinni neina sanngirni.
En þetta eru gersamlega rangar og ástæðulausar sakargiftir, því að það kom berlega í ljós við umræður um málið, að þm. viðurkendu, að sjálfsagt væri að bæta kjör lækna, en þeir vildu eigi bæta þeim á þann hátt, sem farið var fram á í frv., heldur með öðru móti, sem læknar mættu eins vel við una, en kæmi almenningi betur.
Nú er fram komið frv. frá fjárveitinganefnd, um bráðabirgðalaunaviðbót til embættismanna, og þar með auðvitað taldir læknar. En þessi sama nefnd hefir auk þess komið með annað frv., á þgskj. 391, þar sem hjeraðslæknum landsins er heimilað að hækka gjaldskrá sína um 50%.
Nefndin segir í greinargerðinni við frv. þetta, að óhjákvæmilegt virðist, að bætt sjeu launakjör lækna, og munu allir vera á einu máli um það. Hugði jeg, að sú hækkun gæti komið fram í hinu fyrnefnda frv. En nefndinni þykir sú hækkun, sem þar er ákveðin, eigi nægileg, heldur vill hún, að „almenningur beri einnig nokkuð af byrðunum“. En það geta þeir eigi fallist á, sem feldu frv. á dögunum. Þeim virðist það eigi sanngjarnt, heldur þvert á móti rangt, að aukinn kostnaður sje lagður á sjúklingana eða þá, sem að þeim standa. Því að það er rangt, sem sagt er í greinargerðinni við frv. að „almenningur“ taki þátt í kostnaðinum; hann legst að eins á sjúklingana eða aðstoðarmenn þeirra. En þeir geta eigi heitið almenningur. Þetta teljum vjer nokkurir þm. ranglátt, að vanheilsa og sjúkdómar sjeu gerð að gjaldstofni, til þess að bæta kjör vissrar stjettar.
Það er alkunnur sannleiki, að sjúklingar eru yfirleitt ver stæðir en heilbrigðir menn. Sjúkdómar eru tíðastir meðal fátæklinga og gamalmenna, sem erfitt veitist að vinna fyrir sjer. Og auk þess, sem slíkir menn þyrftu að gjalda lækningarkostnað, legðist á þá ýmislegt fleira, sem nú er dýrara og tilfinnanlegra en í venjulegu ári. Má nefna vinnutap t. d., sem er þung álaga á þessum tímum. Enn fremur má nefna kostnað við að leita læknis. Hestlán eru og hálfu dýrari en áður voru þau. Einnig eru vjelbátaferðir eða bifreiðaferðir miklu dýrari, þar sem slíkra ferðatækja þarf við, til þess að vitja læknis. Allur þessi kostnaður legst á bak sjúklinganna.
En hvað gerir hið opinbera til þess að hjálpa þessu fólki?
Alls ekkert. En ýmsum embættismannastjettum er á margan hátt gert greiðara fyrir að komast af heldur en áður. í stað þess á að gera sjúklinga að skattstofni, til þess að bæta kjör þessara embættismanna. Á það viljum vjer ekki fallast.
En vjer erum fúsir á að bæta kjör lækna samkvæmt því, sem farið er fram á á þgskj. 393, eða hækka laun þeirra um 500 kr. á ári. Ef sú uppbót þykir of lág, er jeg fús á að hækka hana, og sjálfsagt virðist mjer, að greidd sje af henni dýrtíðaruppbót. Vjer viljum gjarna bæta læknunum svo, að þeir megi við una. Eins og allir munu sjá, eru 1.500 kr. harla lág árslaun, t. d. á útkjálka lands, þar sem aukatekjur eru litlar, en erfiðleikar miklir við að eiga.
Mjer virðist því síður ástæða fyrir leiðtoga læknafjelagsstjórnarinnar að vita þingmenn fyrir, þó að þeir vilji ekki hækka taxtann með lögum, þar sem þeir kannast sjálfir við, að læknar sjeu ekki bundnir við taxtann, nema ekki náist samkomulag að öðrum kosti. Þeir segja, að það sje orðinn siður að setja læknishjálp töluvert hærra en ákveðið er í taxtanum. Því síður er þá þörf á að hækka taxtanna, úr því að hann gildir að eins. þegar ekki verður samkomulag milli hlutaðeigenda. Við því er ekkert að segja, þó að læknar fari ekki eftir taxtanum, ef um annað semst. Þeir, sem efni hafa á, greiða þá læknum hærra gjald. En fyrst svo er, að læknar þykjast ekki fara eftir taxtanum, þá skil jeg ekki hverja ástæðu þeir geta haft til að gera þennan úlfaþyt út af málinu. Það virðist þá helst gert til þess, að geta gengið að fátæklingunum með oddi og eggju, sem eigi geta goldið læknishjálpina háu verði. En slík þvingunarlög get jeg ekki samþykt, og mun jeg því greiða atkvæði móti frv. En þó að hinar illgirnislegu og óviturlegu getsakir læknaformannanna í margnefndri grein sje læknastjettinni síst til hagnaðar, þá vil jeg eigi láta stjettina gjalda þess, þó að hún hafi tasvíga forvígismenn. Jeg vil láta stjett þessa njóta allrar sanngirni. En um frv. er það að segja, að þó að skrifaðar yrðu hundrað skammagreinar um mig og aðra þm., mundi jeg ekki ljá því fylgi mitt.