27.06.1918
Neðri deild: 57. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 105 í C-deild Alþingistíðinda. (1663)

104. mál, skipun læknishéraða

Framsm. (Matthías Ólafsson):

Að eins nokkur orð til þess að svara hv. 2 þm. Rangæinga (E. J.). Jeg vænti þess ekki, að hann mundi reyna að hrekja það, sem jeg hafði sagt, að þar sem læknar fengju borgun fyrir starf sitt, bæði hjá landssjóði og þeim, sem læknana nota, og hvorttveggja væri orðið oflítið fyrir verðfall peninga, þá væri rjett, að báðir þessir aðiljar greiddu þeim þá launabót, sem flestum kemur saman um að þeir eigi heimtingu á. Og hann gekk líka fram hjá þessu, og það var heppilegast fyrir hann. Jeg vildi að eins geta þessa, til þess að' sýna, hvernig hann færir rök til afstöðu sinnar, sem sje með því að ganga fram hjá því, sem er mergurinn málsins.

Að öðru leyti skal jeg svara pillum þeim, sem hann sendi mjer, ógnarlega stutt. Hann sagði, að jeg ryki altaf upp til handa og fóta, ef minst væri á sveitlandsins og það, er þær legðu fram til hins opinbera. En jeg hefi sagt, og segi enn, að skattalöggjöf vor sje á þann veg, að útgjöldin lendi ekki nær því eins mikið á sveitarfjelögunum og sjávarútveginum.

Hvað það snertir, að jeg hafi komið við landssjóðinn, þá er það rjett, að jeg hefi tekið úr honum mitt þingmannskaup, og er það 2 kr. lægra en þessi hv. þm. (E. J.) fær. En hann hefir skotið algerlega yfir markið, ef hann heldur, að jeg sje á landssjóðnum sem starfsmaður Fiskifjelags. En þetta fjelag hefir sitt vissa framlag úr landssjóðnum árlega, og það kaup, sem það geldur mjer svo fyrir starf mitt, er landssjóði algerlega óviðkomandi.