29.06.1918
Neðri deild: 59. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 109 í C-deild Alþingistíðinda. (1669)

107. mál, verðlagsnefndir

Pjetur Ottesen:

Úr því að formaður bjargráðanefndar hefir óskað, að málið fái að ganga til 2. umr., og þar sem framsm. þessa máls er heldur ekki við, þá get jeg setið hjá að þessu sinni. Annars er jeg á móti frv., en get látið athugasemdir mínar bíða til 2. umr. og vona, að menn muni eins geta komið sjer saman um að slátra því, þó að því sje slept að þessu sinni.