22.05.1918
Efri deild: 24. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 382 í B-deild Alþingistíðinda. (167)
36. mál, stimpilgjald
Sigurjón Friðjónsson:
Jeg var mótfallinn þessu frv. við 1. umr. og er það enn. Jeg lít svo á, að tekjuauki af eiginlegu stimpilgjaldi sje svo lítill, að ekki svari kostnaði að setja lög um það efni. Mjer skildist líka á frsm. (M. T.), að hann væri á sama máli um eiginleg stimpilgjaldslög. En töluverðar tekjur muni verða af farmskírteinunum. Stimpilgjald á farmskírteinum er í raun og veru ekkert annað en útflutningsgjald. Hingað til hafa útflutningsgjöld ekki verið vinsæl hjer á landi, og er síst ástæða til að auka þau nú á þessum tímum. En þó að jeg fyrir mitt leyti gæti aðhylst einhvern beinan skatt af útfluttum vörum þá get jeg ekki með nokkru móti stutt að því, að hann verði lagður á grímuklæddur sem stimpilgjald.