02.07.1918
Neðri deild: 61. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 127 í C-deild Alþingistíðinda. (1678)
107. mál, verðlagsnefndir
Jörundur Brynjólfsson:
Hv. þm. fer að verða vorkunn að hlýða svona lengi á þessar umræður, en hv. þm. Borgf. (P. O.) hefir endurtekið svo mikið af fullyrðingum sínum, er hann hafði við í framsöguræðu sinni, að mjer finst jeg ekki geta látið hjá líða að veita þær upplýsingar, sem skýra málið frekar. Það er hægt að gera athugasemdir við sitthvað í ræðu hv. þm. Borgf. (P. O.), sem sýna honum, að hann stendur ekki á eins föstum fótum og hann hyggur. Jeg mun leitast við að sýna það með tölum, þó honum sje illa við þær, við hversu mikil rök staðhæfingar hans hafa að styðjast, um að enginn árangur hafi orðið af starfi nefndarinnar, hvað verðlag snertir. Hitt get jeg tekið undir, að starf þessarar nefndar hefði mátt vera betra og fullkomnara. Það hefði verið æskilegt. En þá ber og þess að gæta, að verðlagsnefndina hefir skort lagaákvæði, til þess að geta beitt sjer, og úr því hefir ekki verið bætt, en það er ekki sök nefndarinnar. Bæði er stjórninni kunnugt um það, sem áfátt er í þeim efnum, og svo skýrði jeg bjargráðanefnd frá því í þingbyrjun, hversu það væri ókleift, með þeim lagaákvæðum, sem til eru um þetta atriði, að hafa hemil á útsöluverði stórkaupmanna, Hv. þm. Borgf. (P. O.) sagði um daginn, að sjer vitanlega hefði verðlagsnefndin ekki gert neitt að gagni. Jeg hefi aldrei hugsað mjer, og veit ekki til þess, að hann sje það vitrari öðrum mönnum, að hann þekki alt til hlítar án þess að þurfa að afla sjer fróðleiks um málin. Honum hafa staðið til boða skjöl og skilríki verðlagsnefndar, og hefði honum verið innan handar að kynna sjer þau. Annars verð jeg einnig að upplýsa það, að mjer til leiðinda hafa meðnefndarmenn mínir ekki kynt sjer skjölin um starfsemi nefndarinnar eins ítarlega og þurfti, enda þótt jeg ámálgaði það iðulega við þá, en það leiðir af sjálfu sjer, að ekki er unt að kveða upp rjettlátan dóm um þetta atriði, nema því að eins að hafa kynt sjer þau skjöl og skilriki, sem fyrir liggja. Hv. framsm. (S. St.) drap á, að afskifti verðlagsnefndar af útlendri vöru hefðu ekki gert allra minsta gagn. Því mótmæli jeg, því að jeg get sannað það með rökum, að kaupmenn lögðu misjafnt á vörur landssjóðs fram að árinu 1917, en fyrir milligöngu og tillögur verðlagsnefndar var ákveðin viss % (10%), sem þeim skyldi heimilt að leggja á vöruna, sem Þeir fengju frá landssjóði. Það kom þá líka í ljós, að kaupmenn úti um land hefðu gert meira en góðu hófi gegndi að því að leggja á ýmsar vörur, og má nefna, að í Ólafsvík var sykur t. d. seldur hærra verði en annarsstaðar, og sömuleiðis var smjörlíki í Hafnarfirði selt þar nokkru hærra verði en á öðrum stöðum. Verðlagsnefnd greip þar í taumana og færði verðið niður að miklum mun, 15—20 au. hvert kg.
Hv. þm. Borgf. (P. O.) gat um, að ákvæðið um beitutekju á Breiðafirði hefði engan árangur borið, og bar fyrir þessu hv. þm. Snæf. (H. St). Mjer er kunnugt, að það átti að fimmfalda þá upphæð, sem áður hafði verið tekin fyrir beitu, en eftir að verðlagsnefndin skarst í leikinn kom engin kvörtun, svo að jeg verð að álíta, að verk hennar hafi komið að tilætluðum notum. Eftir því, sem kom fram hjá hv. framsm. (S. St.), þá hafði þetta tvent vakað fyrir honum, fyrst, að verðlagsnefndin, sem ekki er rjett, hafi engin áhrif haft á útlendu vöruna, í öðru lagi, að ekki ætti við, að hún beitti áhrifum sínum gegn innlendri framleiðslu, og svo loks, að verðlagsnefndin hefði kostað landið um 10 þús. kr. frá byrjun. Nú skal jeg lítillega minnast á, hvort verðlagsnefnd hafi ekki haft áhrif á verð á innlendum vörum; hitt er annað mál, hvort rjett sje að takmarka verð á innlendum vörum. Jeg skal þá geta þess fyrst, að hjer í Reykjavík 1917 ætluðu brauðgerðarmenn að færa brauðverðið fram. Verðlagsnefnd hefir aldrei sett hámarksverð á brauð, en hins vegar hefir hún haft áhrif á það og gætt þess, að það yrði ekki alt of hátt. Á síðasta hausti ætluðu mjólkurframleiðendur að setja mjólkurverðið upp í 50 aura, en verðlagsnefndin kom því þá til leiðar, að hún hækkaði ekki nema í 48 aura. Á þessu hefir almenningur í Rvík grætt um 16 þús. kr. yfir veturinn.
Nú á síðastliðnu vori ætlaði mjólkurfjelagið að hækka mjólkina upp í 56 aura lítrann, en verðlagsnefndin fjekk því áorkað, að ekki var farið hærra en í 52 aura. Sje nú gert ráð fyrir, að hjer í bænum sjeu seldir 3.750 lítrar á dag, þá nemur mismunurinn 150 kr. á dag, eða 1.500 kr. á mánuði. Það, sem almenningur í Reykjavík greiðir nú minna fyrir mjólk, beint fyrir afskifti verðlagsnefndar, á 6 dögum (um 900 kr.), er hjer um bil sama upphæðin og nefndin hefir kostað frá nýári til þessa dags.
Þess skal getið, viðvíkjandi fiskverðinu, að verðlagsnefndin skarst þar í leikinn. Fisksalar seldu fiskinn á 16—20 aura pundið, en selja hann nú á um 12— 16 aura. Þetta er nú að vísu ekki mikill árangur, en samt nemur það 6.000 kr. á mánuði, ef nægilega mikill fiskur berst að, til að fullnægja þörfum bæjarmanna. Gerum nú ráð fyrir, að fiskþörf bæjarins sje að meðaltali fullnægt að hálfu; þá nemur verðmunurinn 30— 40.000 kr. á ári. Svona mætti halda áfram lengur. (P. O.: Það er best að gera það). — Háttv. þm. Borgf. (P. O.) baðst undan miklu af tölum, og skal jeg því hlífa honum við þeim. En í þessu sambandi eru tölurnar sjálfsagðar, því þær eru það eina, sem ekki er hægt að hrekja.
Hitt er alt annað mál, sem virðist vera skoðun hv. þm. Borgf. (P. O.), að innlendum mönnum eigi að vera heimilt að setja það verð, sem þeim sýnist, á þá vöru, sem þeir hafa til sölu, hvort sem þeir eru framleiðendur eða milliliðir. Það þykir nú heppilegast að hafa tvo stórsala, til að ákveða, hve mikið þeir megi leggja á þá vöru, sem þeir flytja inn í landið. Jeg hjelt nú satt að segja, að stórsalarnir hefðu ekki unnið sjer það traust á þessum síðustu tímum, að þeir fengju sjálfir að skamta sjer verðið á þeirri vöru, sem fer í gegnum hendur þeirra.
En viðvíkjandi því, að ekki eigi að hafa nein afskifti af verðlagi á innlendri vöru, þá er jeg þar á annari skoðun. Jeg skal viðurkenna, að það getur verið skoðunarmál, og mönnum er auðvitað heimilt að hafa hverja rjettmæta skoðun sem er. En skoðunin verður því að eins rjettmæt, að hún sje bygð á þekkingu og reynslu. Mjer þótti leitt, hve háttv. þm. Borgf. (P. O.) staðhæfði mikið við framsögu frv. síns hjer á dögunum, og því leiðara þótti mjer, að hann skyldi endurtaka mikið af þessum staðhæfingum aftur nú. Jeg kann því ávalt illa, er menn fara með staðlausa stafi. Þó háttv. þm. (P. O.) segði, að hann vissi ekki betur, þá er það engin afsökun, því að hann átti kost á að vita alt betur, ef hann hefði viljað bera sig eftir þeirri vitneskju. Og hann hefði meira að segja ekki þurft að bera sig eftir neinni fræðslu, til að komast hjá sumum rangfærslunum, ef hann hefði að eins fylgst með því, sem birt hefir verið í blöðunum. Hv. þm. (P. O.) talaði um það, að hámarksverð á eggjum og kartöflum væri brotið. En veit hann þá ekki, að ekkert hámarksverð er til á þessum vörutegundum. Þegar háttv. þm. (P. O.) veit ekki um það af gerðum nefndarinnar, sem birt er opinberlega í Lögbirtingablaðinu, þá er ekki von, að hann viti mikið um innri starfsemi nefndarinnar, sem hvergi er birt. Svo hvað það snertir gæti jeg látið ummæli hans um nefndina í ljettu rúmi liggja.
Háttv. þm. (P. O.) mintist á afskifti nefndarinnar af mjólkurverðinu. Haustið 1916 ákvað nefndin hámarksverð á. mjólk, en framleiðendur voru ekki ánægðir með það. Án þess að hafa nokkrar vífilengjur fluttu þeir enga mjólk til bæjarins. Jeg skal nú engum getum að því leiða, hvað jeg hefði gert þá, ef jeg hefði verið í sporum framleiðenda. En jeg held, að jeg hefði ekki sett bæinn í mjólkursvelti fyr en eitthvað hefði verið reynt til samkomulags. En framleiðendur voru nú ekkert að skirrast við það að grípa til þessa úrræðis, og ljetu sig litlu skifta, hvað af því gæti leitt að öll börn og sjúklingar væru alt í einu svift þeirri fæðunni, sem þau máttu síst án vera. Þetta eitt sýnir, hvort óþarft er að hafa afskifti af sölu á innlendri vöru. Það sýnir, að þeir menn eru til meðal framleiðenda þessa lands, sem geta, og hika ekki við, ef því er að skifta að nota neyð annara til að knýja fram sínar eigin hagsmunakröfur. Stjórnarráðið kipti þessu í lag. Framleiðendur fengu ekki kröfum sínum fullnægt til fulls. Þeir hefðu sett verðið enn þá. hærra, ef stjórnin og verðlagsnefndin hefði ekki haldið því í skefjum; reynslan er fyllilega búin að sýna það, að framleiðendur gera margir hverjir meiri kröfur en nauðsynlegt er.
Þá mintist hv. þm. (P. O.) á, að afskifti verðlagsnefndar af smjörverðinu hefðu verið óheppileg. En þar til er því að svara, að í fyrrasumar var verð á smjöri hærra hjer en í nokkru nálægu landi. Ef bændur hefðu því flutt smjör sitt út, þá hefðu þeir fengið minna fyrir það en þeir fengu eftir hámarksverðinu hjer. Að vísu hefir eitthvað verið farið í kringum hámarksverðið, meðan það stóð, en verðið varð þó aldrei eins hátt eins og síðar. Strax og hámarksverðið var afnumið, var smjörverðið fært upp um 30 aura pundið. Áður en mánuður var liðinn, var það orðið 50 aurum hærra, og nú er smjörverðið komið í kr. 3,50 pundið.
Þegar nefndin setti hámarksverð á smjörið, fór hún eftir tillögum einhvers mesta smjörframleiðandans á Suðurlandsundirlendinu. Hún studdist því við reynslu og ráðleggingar góðs manns, sem óhætt virtist að leggja mikið upp úr. (P. O.: Hver var hann?). Hann er búsettur hjerna fyrir austan fjallið. (P. O.: Jeg veit það, fyrst hann er smjörframleiðandi á Suðurlandsundirlendinu. En hver var hann?). Mjer er svo sem sama, þótt jeg nefni nafn hans, fyrst hv. þm. (P. O.) virðist bera brigður á orð mín. Hann heitir Eggert Benediktsson. Svo verður hv. þm. sjálfur að hafa fyrir að finna heimilið. Hann er sæmilega vel þektur maður, og verður varla gert lítið úr reynslu hans í þessum efnum.
Jeg held jeg sje nú búinn að sýna fram á, að ummæli hv. þm. Borgf. (P. O.) hafi ekki við mikið að styðjast. Að verðlagsnefndin hafi ekki haft mikil áhrif á verðlag í landinu þýðir ekki að halda fram, og að því fje, sem hefir verið til hennar kostað, hafi ekki verið vel varið, verð jeg að mótmæla. Það er hverfandi lítið í samanburði við þann árangur, sem orðið hefir af starfi hennar.
Hv. þm. Borgf. (P. O.) vill, að þetta land sé öðruvísi en öll önnur lönd í því, að leyfa einstökum mönnum að taka allan þann gróða, sem þeir geta náð í á þessum vandræðatímum, hvernig sem hann er fenginn. Það yrði ofan á, ef verðlagsnefndarlögin væru alveg numin úr gildi. Þess vegna vildi jeg helst, að eldri lögin væru látin gilda áfram óbreytt, eða að minsta kosti sje haldið fulltryggu eftirliti með verðlagi á vörum eftir sem áður. — Að framleiðslan geti orðið nokkru minni fyrir afskifti verðlagsnefndar nær ekki neinni átt. Að hún hafi engu góðu til leiðar komið fer auðvitað eftir því hvernig á það er litið. Hún hefir ef til vill ekki komið neinu góðu til leiðar fyrir þá menn, sem vilja taka sjer meiri gróða en góðu hófi gegnir, en hún hefir komið góðu til leiðar fyrir hina, sem fyrir hennar aðgerðir hafa fríast við að borga of mikið fyrir nauðsynjar sínar, og hún hefir líka komið góðu til leiðar fyrir hina, með því að leggja hemil á framferði þeirra og láta ekki koma í ljós, hve ágengir þeir eru.
Að hafa engin takmörk á verði á innlendum vörum nær ekki nokkurri átt. Hv. þm. Borgf. (P. O.) hefir ekki í huga þá menn, sem enga framleiðslu hafa og verða að kaupa alt af öðrum. (P. O.: Þeir kunna að setja upp fyrir verk sín). — Vinnulýðurinn hefir ekki verið einráður um sín laun, hvorki hásetinn á fiskiskipinu nje daglaunamaðurinn á eyrinni. Og ef litið er á kaupgjaldið, þá er það ekki í neinu hlutfalli við það verð, sem orðið er á vörunum. Það væri þá mest gustukin að láta þetta hlutfall verða enn argara en það er, með því að láta framleiðendur og kaupmenn leika lausum hala með verðlag á öllum vörum.
Jeg get varla ímyndað mjer, að þingið geri bændum neinn greiða með því að afnema nú verðlagsnefndina, og jeg er þess fullviss, að það mundi gert í óþökk margra, — allra þeirra, sem sjá út fyrir túnfótinn sinn.
Það var margt fleira í ræðu þessa hv. þm. (P. O.), sem hefði mátt gera athugasemdir við, en jeg get ekki farið út í það alt saman. Jeg get að lokum ekki alveg slept ræðu hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.). Hann sagði, að orð hv. þm. Borgf. (P. O.) væru töluð út úr hjörtum flestra deildarmanna. Jeg veit ekki hvort hann á þar við öll orð hv. þm. eða að eins nokkuð af þeim, hvort það er það, sem hann sagði um starfsemi verðlagsnefndarinnar, eða eitthvað annað. Ef hann hefir átt við það, sem hv. þm. (P. O.) sagði um nefndina, þá hefir hann verið nokkuð skjótur í ályktunum sínum, því hann hefir áreiðanlega ekki kynt sjer, á hverjum rökum þau voru bygð. En ef til vill voru það einhver önnur orð, sem hv. þm. V.-Sk. (G. Sv.) fundust töluð út úr hjörtum deildarmanna. Jeg þarf ekki að leggja mig niður við að svara þeirri skoðun hv. þm. Borgf. (P. O.) á okkur nefndarmönnunum, að fyrst við fengjum aura fyrir að vera í nefndinni, þá væri okkur sama um, hvort nokkur árangur sæist af starfi hennar eða ekki. (P. O: Hve nær sagði jeg það?) Það kom fram óbeinlínis, þegar sagt var, að nefndin hefði ekki orðið að neinu liði, en samt vildu nefndarmennirnir fyrir hvern mun sitja í henni áfram. Slíkar aðdróttanir í okkar garð, frá hv þm. (P. O.), tel jeg ærið ómaklegar. Hann þekkir okkur alls ekki að neinu slíku.