26.04.1918
Efri deild: 8. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 184 í C-deild Alþingistíðinda. (1705)
22. mál, einkaréttur til verslunar með smjör og tólg
Magnús Kristjánsson:
Segja verð jeg það, að jeg er ekki til fulls búinn að átta frv. því, er hjer liggur fyrir, og hefi því ekki tekið að fullu afstöðu til þess, en mjer virtust mótbárur þær, sem bornar voru fram gegn frv., meir miðaðar við ástandið eins og það var fyrir ófriðinn heldur en við ástandið eins og það er nú, og því er það, að jeg vildi segja nokkur orð.
Öllum hv. þm. hlýtur að vera það ljóst, að feitmetisskorturinn hjer á landi kemur eingöngu af því, að aðflutningarnir hafa tepst. Og þótt eitthvað af smjöri sje fáanlegt fyrir 6 kr. til 6 kr. 50 aura kílóið, þá er það svo hátt verð, að allur þorri manna hefir ekki efni á því að kaupa svo dýrt feitmeti, og verður því að vera feitmetislaus. Og ef hann hefði efni á að kaupa feitmeti slíku verði, þá yrði eftirspurnin margfalt meiri en framboðin. Þess vegna er það nauðsynlegt, að framleiðsla á smjöri aukist að miklum mun, ef frv. þetta á að ná tilgangi sínum, og svo hlýtur að verða, ef frv. um fráfærur ásauðar nær fram að ganga. Mjer finst, að þá sje þetta frv. beinlínis nauðsynlegt, og þá kemur það á heppilegu viðskiftafyrirkomulagi. Mjer finst frv. stefna að því, að framleiðandi fái sem mest fyrir vöru sína, en þetta er vitanlega þveröfugt við skoðun 1. þm. Rang. (E. P.).
Jeg sje ekki ástæðu til þess að fara frekar út í mótbárur þær, er bornar voru fram gegn frv., en þegar verið er að bera smjörverðið saman við verð útl. vöru, þá verður það að gerast með mikilli aðgæslu, og er alls ekki nóg, eins og hjer var gert, að taka einstaka matvörutegundir til samanburðar, heldur verður að miða við verð margra vörutegunda. En þótt smjörverðið sje borið saman við kornvöru, þá hefir þó smjörverðið hækkað miklu meira en kornið.
Þá var því haldið fram, að smjörframleiðsla á Suðurlandi sje mikið kostnaðarmeiri en annarsstaðar á landinu. Má vera að svo sje, en með öllu er það þó órannsakað og óupplýst mál, enda hefir kostnaðurinn við það ekki stóraukist á einu ári. En þótt svo væri, þá má gera ráð fyrir, að sá kostnaðarauki hafi átt sjer stað um land alt. Þess vegna ekki ástæða til að halda því fram, að fyrirkomulag það, er frv. þetta fer fram á, þótt það næði fram að ganga, kæmi sjerstaklega hart niður á einum landshluta fremur öðrum.