29.04.1918
Efri deild: 9. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 186 í C-deild Alþingistíðinda. (1707)
22. mál, einkaréttur til verslunar með smjör og tólg
Frsm meiri hl. (Sigurjón Friðjónsson):
Eins og kunnugt er, hefir bjargráðanefndin klofnað í þessu máli. Meiri hluti hennar leggur til, að frv. nái fram að ganga með nokkrum breytingum, en minni hlutinn vill fella frv. strax.
Aðalbreytingar meiri hlutans eru tvær. Önnur er sú, að hækka hámarksverðið um 50 aura á hverju kg., A-flokkinn upp í kr. 5,00 og R-flokkinn upp í kr. 4,50. Hin aðalbreytingin er sú, að fella niður undanþágu frá hámarksverði á smjöri því, sem gengur beint milli framleiðenda og neytenda, og er það gert til þess, að auðveldara verði að fyrirbyggja braskaraverð á smjörinu, og í sömu átt gengur ákvæðið um sektir á brotum gegn lögunum.
Um mótbárur minni hlutans get jeg verið fáorður. Mjer virðist þær vera sjálfum sjer sundurþykkar, og geta því ekki staðist, frekar en ríkið, sein var sjálfu sjer sundurþykt. Annars vegar kemur fram trúleysi á því, að lög þessi gætu orðið til þess að auka smjörframleiðslu í landinu, en hins vegar er hræðsla við það, að of mikið smjör berist í hendur landsverslunarinnar, og hún muni því neyðast til að selja það með niðursettu verði. Síðari mótbáran, að smjörið verði of mikið, þykir mjer ólíkleg, enda væri þá hægt fyrir landsverslunina að selja smjör til útlanda, og það jafnvel fyrir hærra verð en hámarksverðið er hjer. Hitt þykir mjer sennilegra, að áhrif laganna í þá átt, að auka framleiðsluna, yrðu ekki eins mikil og þörf er á, en þó hygg jeg, að þau yrðu talsverð.
Jeg skal svo ekki fara fleiri orðum um frv. að þessu sinni, en vil þó geta þess, að í ráði er hjá meiri hluta nefndarinnar að koma fram með brtt. við 3. umr. málsins, og stendur svo á því, að nokkrir menn hjer í Reykjavík hafa í hyggju að setja á stofn smjörlíkisverksiniðju, en það geta þeir því að eins, að þeir hafi tryggingu fyrir því, að þeir fái tólg við sæmilegu verði. Vilja þeir gera samninga við landsverslunina um það, og taki hún síðan smjörlíkið af þeim til útsölu. Jeg vildi að eins vekja athygli á þessu, í þeirri von, að frv. fái fram að ganga.