29.04.1918
Efri deild: 9. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 196 í C-deild Alþingistíðinda. (1713)

22. mál, einkaréttur til verslunar með smjör og tólg

Frsm. minni hl. (Guðmundur Ólafsson):

Hv. þm. Ak. (M. K.) sagði, að enginn hefði leyft sjer að halda því fram, að frv. þetta væri skaðlegt. Það er nú svo — það kann að vera, að enginn hafi sagt það með beinum orðum, en vjer, sem erum í minni hl. í nefndinni, höldum því fram, að frv. sje skaðlegt, því það er jafnan skaðlegt að setja gagnslaus lög, sem fáir eða engir fara eftir, en margir brjóta. Jeg er sannfærður um það, að hvorki framleiðendur nje neytendur hafa nokkurt gagn af þessu frv. Hv. flm. (S. F.) sjálfur hefir heldur aldrei leyft sjer að halda því fram, að smjörframleiðslan ykist, þótt frv. hans yrði samþykt, og hv. þm. Ak. (M. K.) sagði við 1. umr. um frv., að það væri einkis nýtt. (M. K.: Ekki rjett, jeg neita því). Má vera, að það komi ekki í þingtíðindin, en hann bætti þá raunar við: ef fráfærnafrumvarpið verður ekki samþykt, sem getur þó varla haft mikil áhrif. Af þessu vona jeg, að menn sjái, að nytsemi frv. er ekki mikil, þegar aðalforkólfar þess vantreysta því sjálfir.