29.04.1918
Efri deild: 9. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 197 í C-deild Alþingistíðinda. (1715)

22. mál, einkaréttur til verslunar með smjör og tólg

Halldór Steinsson:

Hv. þm. Ak. (M. K.) lagði áherslu á það, að með frv. þessu væri sett hámarksverð á smjör, en ef það er aðalatriði frv., þá vil jeg benda á, að til þess þarf ekki lagasetningu. Verðlagsnefndin getur hve nær sem er sett hámarksverð á smjör, og það heyrir beinlínis undir verkahring hennar. Annars vil jeg, úr því jeg stóð upp, mótmæla því um leið, að jeg fylgi nokkurri niðurrifspólitík, eins og hv. þm. Ak (M. K.) bar mjer á brýn.