29.04.1918
Efri deild: 9. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 203 í C-deild Alþingistíðinda. (1721)
23. mál, skipamiðlarar
Flm. Magnús Kristjánsson):
Viðvíkjandi fyrirspurn hv. þm. Ísaf. (M. T.) vil jeg taka það fram, að eftir anda þessarar gr. frv. og frv. í heild sinni mega ekki aðrir vera skipamiðlarar en þeir, sem löggildingu hafa hlotið. Þetta finst mjer vera skýrt í frv., þó mætti má ske orða það skýrar.
Hv. þm. Ísaf. (M. T.) sagði, að jeg hefði ekki lagt til, að málinu yrði vísað til nefndar, og var það af því, að mjer fanst það eðlilegra, að sú tillaga kæmi frá öðrum, án þess þó, að jeg hafi nokkuð við það að athuga, en mjer finst rjettast að vísa málinu til allsherjarnefndar, og vil jeg því leggja það til, að svo verði gert, þegar umr. er lokið.