16.05.1918
Efri deild: 20. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 206 í C-deild Alþingistíðinda. (1724)

23. mál, skipamiðlarar

Magnús Kristjánsson:

Jeg má vera nefndinni þakklátur fyrir það, að hún hefir aðhylst frv. í þeirri mynd, sem jeg bar það fram; einkum fyrir það, að fyrir henni lá annað frv., miklu víðtækara sem jeg álít að hefði verið óheppilegt að samþ., eins og nú er ástatt. Annað mál er það, að mjer virðast brtt. n. ekki mikils virði. Óþarfi er það af nefndinni að láta prenta upp heilar greinar, þar sem ekki þurfti annað en skjóta inn nokkrum orðum.En naumast ástæða til að fást mikið um það. Nafnbreytingin á miðlunum getur verið álitamál. Jeg er raunar á máli nefndarinnar um það, að „miðill“ er fegurra orð en „miðlari“, en orðið „miðlari“ var af ásettu ráði sett í frv. „Miðill“ er til í málinu í annari merkingu. Það orð hafa andatrúarmenn sett sitt mark á, og væri mjer mjög á móti skapi, ef þeim tveim merkingum væri ruglað saman.

Eins og jeg sagði, eru brtt. mjög þýðingarlitlar, og get jeg látið mjer á sama standa um þær.