22.05.1918
Efri deild: 24. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 221 í C-deild Alþingistíðinda. (1743)

56. mál, fólksráðningar

Kristinn Daníelsson:

Jeg vildi að eins láta það í ljós, að jeg treysti mjer ekki heldur til að fylgja frv. þessu fram, eins og það nú liggur fyrir. Og jeg hafði vænst þess, að hv. nefnd gerði við það miklu gagngerðari breytingar. Annars hefi jeg, eins og hv. þm. Snæf. (H. St.), ekkert á móti því, að skrifstofa til fólksráðninga væri sett á fót.

En eins og sami hv. þm. (H. St.) benti á, þá eru það sjerstaklega ákvæðin í 2. gr. frv., sem ekki er hægt að fella sig við. Jeg get alls ekki gengið að því, að tekinn verði hópur manna, þótt svo ætti að vera, nauðugur og fluttur, þvert ofan í vilja sinn, frá einum landshluta til annars. Jeg lít svo á, að í þeim sökum sje ekki holt að fara lengra en heimilað er í sveitarstjórnarlögunum.

Jeg get þó greitt frv. þessu atkv. til 3. umr., ef vera kynni, að þá kæmu fram víðtækari brtt. Sjálfur hefi jeg ekki hugsað til að koma fram með brtt. við frv. þetta, því að yfir höfuð hefi jeg ekki mikið traust á ráðstöfunum þannig löguðum. Jeg geri líka ráð fyrir því, að ef svo væri komið, að taka þyrfti hóp manna af einhverjum stað á landinu, vegna neyðar, þá yrðu aðrir staðir heldur ekki færir um að taka við þeim mönnum. En aðalatriðið, sem fyrir mjer vakir, er það, að fólki, sem ekki leitar sjálft á annara ásjá, verði ekki ráðstafað nauðugu og flutt frá einum til annars.