10.06.1918
Neðri deild: 42. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 256 í C-deild Alþingistíðinda. (1773)
56. mál, fólksráðningar
Bjarni Jónsson:
Jeg hefi gert brtt. við þetta frv.,og átti nefndin aðgang að þeim. Ætla jeg, að hún hafi sjeð þær áður en hún ljet prenta sínar. (S. S.: Rjett). Jeg skal geta þess, að jeg tel ekki sæma að setja slík lög á Alþingi, nema bygð sjeu á skynsamlegum grundvelli. Að káka við slíkt er ekki til nokkurs hlutar. Annað tveggja verður, að láta alt arka að auðnu, eða fá alt stjórninni í hendur. Jeg tel, að eins og nú horfir um aðstöðu Íslands og viðburði heimsins, eigi stjórnin að taka við öllum atvinnuvegum landsins í sínar hendur. En til þess að haga atvinnuvegunum þannig, að landið geti sem mest búið að sínu og þurfi ekki að sækja undir högg til annara, þá verður stjórnin að hafa fult vald til þess að ráða fólk til atvinnunnar og hagnýta vinnukraftinn á þann hátt, að sem mest verði aflað og sem mest framleitt úr skauti jarðar og sjávar, til þess að ala önn fyrir þessari þjóð veturinn er nú fer í hönd, og með hliðsjón á árunum fram undan, því að ef stríðið heldur áfram, þá er auðsætt að þetta land verður að læra að búa að sínu. Og það er engin frágangssök. Í þessu landi má fá svo mikið af næringarefnum, að þjóðin getur vel lifað af, ef hún kann að blanda þau, svo að hún þarf ekki að sækja til annara, eða eiga viðurværi sitt undir þeirri slempilukku, að tundurskeyti hæfi ekki skipin, sem flytja mat að landi, þar sem svo mikil eru vígaferli á sjónum. Þess vegna þarf að skifta vinnukraftinum svo haganlega milli atvinnuveganna, að trygging sje fyrir því, að landsmenn falli ekki úr hungri, er fram á veturinn kemur.
Það er næst á að minnast, að ekki er langt síðan kunngerðir voru samningar þeir, er gerðir hafa verið við bandamenn, fyrir landsins hönd. Er skjótsjeð á þeim samningum, að öðrum aðalatvinnuvegi landsins, sjávarútveginum, er í beinan voða stefnt, svo að engar líkur eru til, að hann framfleyti eins mörgum og undanfarið. Þetta fólk verður því atvinnulaust, er fram á kemur, og peningalaust, og mun þeim ekki þægilegt um atvinnu til viðurværis, er vetrar að. Það er því bersýnileg hætta fyrir stjórnina og landið yfir höfuð að ganga í móti vetri með stórar borgir og kauptún full af fólki, sem hún þarf ef til vill að taka upp á arma sína á miðjum vetri. „Ekki er ráð, nema í tíma sje tekið“; þess vegna verður nú tafarlaust að ráðstafa því fólki, sem ekki er bjargarlaust, en getur orðið það. Það er ekki til neins, eins og til hagar hjer, að vera að geyma hjálpina þangað til atvinnuvegir eru komnir í kalda kol, því að þá er ekki til neins að taka, því að hvar er þá björgin? Það getur verið nóg gull til í handraðanum, en engin björg fyrir fólkið. Vil jeg hjer minna á atriði síðustu daga, en það er það, að nú hafa kafbátastöðvar verið fluttar vestur að Vesturheimsströndum, og hvar er nú trygging fyrir því, að þessir sterku vígdrekar, er geta legið úti mánuðum saman, sneiði fram hjá 2—3 skipum, sem Íslendingar eiga í förum ? Hvar er trygging fyrir því, að þessum skipum verði ekki sökt áður en þau koma heim nokkurri lúku af korni, eða kann ske helmingnum af því, sem nauðsynlega þarf, en þegar ekkert korn er til, hvernig á þá að fara að því að bjarga fólkinu? Það er fyrirhyggjan ein, sem bjargar þjóðunum í stríðinu, og þar eiga menn að semja sig að kenningu hins mikla lærimeistara heimsins í þessu stríði, Þýskalands. Það er þess vegna alt, sem gert er í þessu máli, kák, nema það eitt, að gera alt til þess að auka framleiðsluna; en til þess að tryggja líf fólks hjer í Rvík verður strax að byrja á öflugum ráðstöfunum og framkvæma þær, en bær eins og Reykjavík er alls ekki trygður nema fjölda fólks sje ráðstafað til ársvista upp í sveitir, þar sem mjólk er til. Allir vita, að Reykjavík hefir þolað mikinn mjólkurskort, þrátt fyrir allan þann mikla tilkostnað, sem ráðist hefir verið i, við að sækja mjólk austur yfir fjall, en þegar bændur fá miklu minni skamt af korni en verið hefir, verða þeir að búa að sínu, og má æra óstöðugan að fara þá að taka af þeim þeirra eigin mjólk. — Nei, látum þá fá fólkið til að vinna að heyskapnum, svo að ekki þurfi að skera fjeð niður í útlendinga, sem ætla að gera svo vel að kaupa það fyrir hundsbætur. Látum t. d. hjón fara með 2 börn upp í sveit og vinna þar fyrir þeim kauplaust, eða þá að kaupið sje nákvæmlega metið. Hjer á ekki að hugsa um það, að ein stjett græði eða tapi, en það, sem þjóðin á að gera, og það, sem Alþingi og stjórn á að hugsa um og gera, er það, að sjá um, að þrátt fyrir skaða sinn lifi þjóðin. Menn þekkja veðráttu hjer á landi; bjargartíminn er 2 mánuðir eða 3, og þann tíma verður að nota; því er á þessum síðustu dögum seinasti tími til að gera tryggingarráðstafanir. Jeg vil benda á, að það er ekki til neins að vona, því að hve lengi er eitt tundurskeyti að gera enda á þeim vonum ? Það er því ekki til neins að búa eins og verið hefir, því að menn hafa bókstaflega bygt á því, að Þjóðverjar hjeldu ekki út nema 2 mánuði fram yfir síðustu þingslit, en menn ættu nú að fara að sjá, að það eru engar veikar þjóðir, sem hjer eigast við, heldur tvær hinar sterkustu þjóðir, sem til eru, Þjóðverjar og Englendingar. Þess vegna er ekki til neins að byggja vonir á því, að önnur hvor þeirra muni detta fyrir borð, því að þótt báðar þeirra sjeu orðnar úrkula vonar um að sigra, mun þó langt að bíða þess, að þær, með allri þeirra manndáð, ásamt þeim þjóðum, er hvorri þeirra fylgja, hætti að berjast. Þess vegna er ekki annað fyrir Íslendinga að gera en að taka verulega skynsamlegar ráðstafanir, og er þá ekki annað til en að nota íslenska náttúru og íslenska jörð til þess að framleiða af henni það, sem þjóðin þarf til þess að lifa; en það er ekki til neins að láta reka á reiðanum, því að langt verður til þess, að allur almenningur fer að skilja þetta eins vel og hv. þm. ættu að gera. Það er þingið, sem á að skilja þetta, því að það er kosið af þjóðinni tii þess að hafa á hendi stjórn landsins, og það er skylda þings og stjórnar að gera nú svo viturlegar ráðstafanir, að þjóðin verði ekki svikin þegar mest á liggur.
Á þessari grundvallarhugsun byggjast mínar till.; því að þetta skrifaði jeg meira upp til þess, að það væri sú stefna, sem nefndin ætti að fara eftir, og enn fremur gerði jeg ráð fyrir, að hún mundi bæta ýmsu inn í, sem til bóta mætti verða. Jeg hafði talið mjer skylt að láta hv. bjargráðanefnd þessar till. í tje, svo að hún gæti athugað þær nánar.
Eitt atriði vil jeg nefna; það er það, sem er 4. liður hjá mjer, sem hv. frsm. (S. S.) sagði að nefndin vildi ekki fallast á, að stjórnin þarf að hafa heimild til að taka búskap landsins í sínar hendur og skipa bændum hjú. Nú kann að vera, að einhver bóndi segi: Jeg hefi nógu stórt bú; jeg kæri mig ekkert um meira fje og fleiri hjú. En þessi bóndi býr t. d. á stórri jörð og getur tekið ein hjón með tvö börn, og má vel stækka hans bú; þá verður hann að hlýða og búa fyrir þjóðina og stækka sitt bú. Það er ekki til neins að beita harðúð við verkamennina, en láta hinn aðilann, vinnuveitandann, neita að hlýða sjer, með því að stjórnina vanti heimild til þess að skipa fyrir. Hv. þm. skulu sanna, að það verður þessu landi verulega dýrt, ef þessi till. verður feld. En geri þeir nú eins og þeim líkar; jeg mun finna ráð til að sýna, að jeg hefi ekki farið með neina heimsku, og eins munu viðburðirnir, þeir er síðar gerast, sýna, að jeg hefi farið hjer með rjett mál.