10.06.1918
Neðri deild: 42. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 263 í C-deild Alþingistíðinda. (1775)
56. mál, fólksráðningar
Forsætisráðherra (J. M.):
Mjer sýnist till. hv. þm. Dala (B. J.) fara í rjetta átt. Mjer virðist, að hv. bjargráðanefnd hafi ekki lagt nægilega áherslu á það, að gera ráðstafanir til þess að skifta vinnukraftinum niður á atvinnuvegina, hindra það, að þeir, sem atvinnu þurfa, sitji langan tíma yfir lítilli vinnu. Þar í held jeg að hættan sje mest, en ekki svo mjög mikil í því, að atvinna fáist ekki yfirleitt, að minsta kosti ekki enn þá. Get jeg nefnt það þegar, að mestu hættuna tel jeg stafa af síldveiðunum, því að vera má, að ráðist verði í mjög mikinn síldarútveg, að nokkru upp á óvissu, sem svo hættir í miðju kafi. En þar sem síldarútvegur er rekinn er margt fólk saman komið til að stunda þá atvinnu, og gæti þetta orðið mjög slæmt fyrir kaupstaðina. Notadrýgri gæti þó önnur atvinna orðið fyrir landið, þótt dagkaupið væri þar ekki alveg eins hátt. En þetta alt er fjarska erfitt við að eiga, vegna þess, að fyrir þetta sumar, sem nú fer í hönd, býst jeg við, að naumast verði hægt að gera þær ráðstafanir, sem að gagni mættu koma. En ef ófriðurinn heldur áfram, þá veit jeg, að hugsa verður fyrir því, að fólkið hafi atvinnu við framleiðslu, sem vissa sje fyrir að hægt verði að fá.
Aftur á móti er jeg ekki eins trúaður á það, sem mjer finst allmargir hv. þm. vilja, að hyggilegt sje að skylda bændur til að taka hjú. það er, held jeg, ákaflega örðugt og ákaflega athugavert, jafnvel á svona tímum, vegna þess, að á milli húsbænda og hjúa er náið samband, og því mjög ilt að lögbjóða það. En jeg held samt, að það eigi að veita landsstjórninni eða fólksráðningaskrifstofunni einhverja heimild til að skipa atvinnulausu fólki í þá staði, þar sem það getur starfað að framleiðslu; en ef þessi fólksráðningaskrifstofa, eða landsstjórnin, hefir engum peningum yfir að ráða, til þess að útvega þessum mönnum atvinnu, þá er jeg hræddur um, að þetta geti orðið meira í orði en á borði. Jeg held þess vegna, að með þessari skyldu, um að sjá fyrir því, að atvinnulaust fólk geti fengið atvinnu við einhverja framleiðslu, hefði átt að fylgja heimild til að nota fje til þess, eitthvað svipað og var í lögum þeim, sem enn þá gilda, um að sjá fólki fyrir atvinnu, en sem sagt, jeg ætla ekki að fara lengra út í það atriði.
Eins og að framan er talið, er jeg samdóma hv. 2. þm. Rang. (E. J.), að jeg verð að telja það mjög svo athugavert að skipa bændum að taka hjú. Að öðru leyti vona jeg, að mál þetta fái sem bestar undirtektir og athugun.