10.06.1918
Neðri deild: 42. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 269 í C-deild Alþingistíðinda. (1777)

56. mál, fólksráðningar

Bjarni Jónsson:

Jeg ætla mjer að reyna að endurtaka ekki margt af því, sem jeg sagði í fyrri ræðu minni. En eftir því, sem mjer hefir heyrst af tali sumra hv. þm., sem gert hafa mál þetta að umtalsefni, þá hafa þeir ekki vel skilið, hvað væri „í hagfeldustu hlutföllum“. það var þó ekki erfitt að skilja, að þar, sem um matvæli er að ræða, þá muni átt við, hvað væri hæfilega mikið af hverri matartegund. Einhver var og að tala um, að með orðunum „og ráða slíkt fólk í vist“ mundi vera átt við atvinnulaust fólk. En það er ekki ætlun mín með þessari till., að þá fyrst verði farið að annast um fólkið, þegar það er orðið atvinnulaust, heldur á hún og frv. í heild sinni að koma í veg fyrir, að fólk verði atvinnulaust og bjargarvana. Svo man jeg ekki eftir að fram kæmi annar sjerstakur misskilningur á orðalaginu, sem jeg hafði haft. Hæstv. forsætisráðherra sýndist ekki hafa trú á að skipa fólki í vist og að skipa mönnum að taka við slíku fólki. En mín skoðun er sú, að besta bjargráðið, sem við höfum, sje að koma fólkinu fyrir á þeim stöðum á landinu, þar sem best er og hægast að útvega næringu, bæði mjólk og kjötmeti o. fl. Það ætti því að taka fólkið úr kaupstöðunum og ráða það í ársvist á slíkum stöðum, með það fyrir augum, að þarna gæti það þó lifað, þó að erfitt yrði um aðflutninga í haust eða vetur, en altaf geta aðflutningar tepst hingað til landsins. Einhleypt fólk og fólk með fá börn yrði að sitja fyrir að fara í sveitirnar, því að ekki er von, að bændur taki upp á sína arma fólk, sem hefir mörg börn í eftirdragi og er því bundið við þau, svo að það getur lítið annað aðhafst. Það fólk yrði að verða eftir í kaupstöðunum og sitja þar fyrir þeirri vinnu, sem til fellur, og mundi þá hægra að útvega því mjólk og aðrar bráðnauðsynjar, er hitt er á braut.

Jeg ætla svo ekki að fjölyrða frekar um þessar tillögur. En að gefnu tilefni skal jeg lýsa því yfir, að það eru með öllu tilhæfulaus ósannindi, að jeg hafi bent til þess, að Þjóðverjar mundu eða ætluðu að hefna sín á Íslendingum fyrir samninga þeirra við Breta. Mjer hefir ekki neitt slíkt til hugar komið, því síður að jeg hefði getað sagt það. Hitt benti jeg á, að skipum þeim, sem flytja eiga nauðsynjar til Íslands, hlyti að stafa háski af því, að þau yrðu neydd til að sigla um ófriðarsvæði. Það mætti gera ráð fyrir, að þeim yrði sökt, þó ekki yrði það gert í hefndarskyni. Jeg hefi í þessari ræðu minni, eins og ávalt endranær, gert mjer far um að vera með öllu hlutlaus, og það er hrein og bein rangfærsla á orðum mínum, ef nokkuð er lagt inn í þau annað en það, sem er í alla staði hlutlaust. — Það ætti að vera orðið kunnugt mönnum hjer á landi, að þó þessi aðili ófriðarins vilji forðast að sökkva íslenskum skipum, þá hefir hann þó á skömmum tíma sökt þremur skipin, sem voru að flytja vörur til Íslands, þó ekki væru þau íslensk eign, eða með íslenskri áhöfn. Svo hlýtur ávalt að geta farið, þegar siglt er um ófriðarsvæði. Það, sem jeg sagði, var það, að viðbúið væri, að innan skams yrði lagt hafnbann við strendur Vesturheims. Þess vegna yrði hætta búin þeim skipum, sem þangað ættu matvæli að sækja fyrir oss Íslendinga, og óhæfilegt væri að treysta því, að það tækist til lengdar. Það eitt sagði jeg, annað ekki.

En þar sem sagt var, að jeg hefði haft í hótunum við þingmenn, þá get jeg tekið upp aftur þau ummæli mín, sem líklega hafa verið lögð þannig út. — Jeg sagðist ætla að láta úttalað um till. mínar, því að rás viðburðanna mundi sanna mál mitt, þótt þingmenn vildu ekki leggja trúnað á það nú. Þannig hefi jeg oft áður staðið uppi á þingi og varað menn við hættulegum atburðum, sem í vændum voru. Það gerði jeg meðal annars á þinginu 1916. Það var ekki af því, að jeg vissi betur en aðrir, hvað verða mundi, heldur af því, að jeg reyndist í það sinn glöggskygnari en aðrir. Jeg sagði það þá á þinginu, að hert mundi bráðlega á kafbátahernaðinum, svo afardýrt og stórhættulegt mundi verða að sigla skipum til Englands. Hvatti jeg í því sambandi þingið til þess að gera ráðstafanir um kolarannsókn og kolagröft innanlands. Þessum orðum var þá ekki gaumur gefinn, en samt áttu þau sjer ekki langan aldur. Jeg vildi ekki fremur en þá verða sannspár að þessu sinni, en jeg efast ekki um, að jeg verði það. — Ef þetta verða kallaðar hótanir, þá vil jeg leyfa mjer að minna hv. þm. á, að það eru þeir, sem eiga að sjá framtíð þessa lands borgið, með atkvæði sínu og aðgerðum á þingi.