22.05.1918
Efri deild: 24. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 393 í B-deild Alþingistíðinda. (178)

36. mál, stimpilgjald

Jóhannes Jóhannesson:

Háttv. frsm. (M. T.) vildi rjettlæta hina lágu borgun til sýslumanna og bæjarfógeta með því, að þeir væru orðnir slíku svo vanir. Þetta virðist óneitanlega alleinkennileg röksemd, því að margendurtekið ranglæti getur aldrei orðið rjettlæti, heldur að eins aukið ranglæti. En svo eru það ekki eingöngu sýslumenn og bæjarfógetar, sem eiga að sjá um þessa stimplun skjala og reikninsfærslu, sem þar að lýtur, heldur sparisjóðir út um alt land og bankarnir. Þeir verða því ekki síður hart úti með sín 2% af upphæðinni, sem inn kemur. Og jeg fyrir mitt leyti get ekki sjeð, að það geti komið til mála að samþykkja lögin án breytinga í þessu efni.

Annars hefi jeg ekki miklu við það að bæta, sem jeg tók fram í fyrri ræðu minni. Að eins vil jeg enn benda á það, að t. d. lausamenskuleyfisbrjef, útgefin af valdsmanni, verður nú að stimpla með 5 kr. gjaldi, eins og öll önnur samskonar leyfisbrjef. Nú kosta lausamenskuleyfisbrjefin 2 kr. Það er með öðrum orðum 150% sem lagt er á þau.

Jeg vil endurtaka það, að jeg vona, að nefndin taki athugasemdir mínar til greina og athugi frv. nákvæmlega enn á ný.