24.05.1918
Efri deild: 26. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 276 í C-deild Alþingistíðinda. (1786)

66. mál, þurrkun kjöts með vélarafli

Frsm. (Guðmundur Ólafsson):

Þetta frv. var til meðferðar á síðasta þingi í Nd., en kom ekki fyr en í þinglok, svo ekki vanst tími til að athuga það í þessari hv. deild.

Eftir ósk leyfisbeiðanda við landbúnaðarnefndina hefir það nú orðið ofan á í nefndinni að flytja frv. Eins og skýrt er frá í greinargerðinni, er frv. tekið upp eins og hv. Nd. gekk frá því í fyrra, en nefndin hefir síðan athugað það, að orðalaginu á því nokkuð ábótavant, og því ber hún fram brtt. þær, sem prentaðar eru á þgskj. 199.

Leyfisbeiðandi mætti á einum fundi með nefndinni, og hafði þá með sjer vjelþurkað kjöt, og leist nefndarmönnum fremur vel á það, og hygg jeg, að það muni vera fremur góður matur, er litið er til þess, hversu lengi það hefir verið geymt. Leyfisbeiðandi er nú orðinn fjelagi í kjötþurkunarfjelagi í Danmörku, og hefir það gert tilraunir með að vjelþurka kjöt þar, og ef þingið samþykkir frv. þetta, ætlar það strax í haust að byrja á tilraunum í smáum stíl hjer, og býst þá við að þurka að eins um 300 kíló á sólarhring. Efnarannsókn hefir farið fram á þessu kjöti, og eftir henni hefir það svipað næringargildi og reykt kjöt eða vindþurkað. En fjelaginu er áhugamál að fá einkaleyfi þetta, því ef vel gengur, þá getur það búist við, að fleiri fjelög setjist hjer að í þessu skyni og gera aðstöðu þess erfiðari. (Forseti: Vill geta okrað á okkur). Nei—því kjötið er ætlað til útflutnings, en það vill tryggja hag sinn sem best.

Jeg finn ekki ástæðu til að fjölyrða frekar um frv., en vona, að hv. deild taki frv. vel, og að minsta kosti sjái sjer fært að yfirvega það vandlega.