04.07.1918
Efri deild: 57. fundur, 29. löggjafarþing.
Sjá dálk 321 í C-deild Alþingistíðinda. (1821)
108. mál, húsaleiga í Reykjavík
Atvinnumátaraðherra (S. J.):
Á síðasta þingi komu fram andmæli gegn húsaleigulögunum, en þá var þeim mjög lítið breytt eða ekkert, í þeim atriðum, sem nú er lögð áhersla á að breyta. Flm. (G.G.) virtist leggja aðal áhersluna á, lögin væru ósanngjörn gagnvart eigna- og umráðarjetti húsráðenda, enda er þetta nýja frv. til orðið þess vegna. En frá mínu sjónarmiði er breytingin nú talsvert mikil gagnvart leigjendunum, kosti þeirra allmjög þröngvað.
Flm. (G.G.) hjelt því fram, eins og líka er haldið fram í greinargerð frv., að með lögunum, eins og þau eru nú, megi raska heimilisfriðnum og það geti gengið svo langt, að eigendur verði að flýja eign sína. Jeg held nú, að heimilisfriðnum sje hættara við að raskast af öðrum ástæðum en þessum lögum, enda mun það víst ekki hafa komið fyrir, síðan lögin gengu í gildi, að húseigendur hafi nokkurn tíma þurft að flýja eign sína vegna leigjendanna, og verður þessi ástæða naumast tekin alvarlega.
Eins er tekið fram í greinargerðinni, að húseigendur geti ekki rýmkað til hjá sjer, jafnvel þó þeir þurfi að skjóta skjólshúsi yfir nánustu skyldmenni sín. En það verður ekki sjeð af frv., að það hafi verið samið með nokkuð slíkt fyrir augum, heldur sje það ekki fram komið til annars en þess, að húseigendur geti sagt upp leigjendum þegar þeim gott þykir.
Jeg tók það fram á síðasta þingi, að húsaleigulögin, sem nú gilda, hefðu fengið góðan undirbúning. Frv. var rætt á bæjarstjórnarfundum, og vildi hún hafa ákvæðin enn strangari en til var ætlast, svo að þegar lögin komu frá bæjarstjórn, þá var dregið nokkuð úr ákvæðum þeirra í stjórnarráðinu, en það sýnir, að bæjarstjórn hefir viljað ganga enn lengra en farið hefir verið enn þá í þessu máli.
Jeg tel þá líka alveg sjálfsagt, að þetta frv. verði borið undir bæjarstjórn Reykjavíkur, og með fram vegna þess býst jeg ekki við, að það skifti svo miklu máli, hverjir hjer í bæ hafa fengið þingmenn til að koma með frv. Það gilda samskonar lög og núgildandi húsaleigulög hjer í öllum stærri borgum erlendis, lög, sem bæjarstjórnir hafa samið eða verið í samráði með að semja, og þau eru flest enn harðari gagnvart húseigendum en þessi lög.
Þetta mál er stórt mál og mikilvægt fyrir þennan bæ; þess vegna er það mín eindregin tillaga, að því verði, að þessari umr. lokinni, vísað í allsherjarnefnd og hún gefi sjer svo tíma til að bera málið undir bæjarstjórn Reykjavíkur.